Viðskipti innlent

Landsbankinn selur hlut sinn í Borgun

Atli Ísleifsson skrifar
Steinþór Pálsson, bankastjóri Landsbankans.
Steinþór Pálsson, bankastjóri Landsbankans. Vísir/Daníel
Landsbankinn undirritaði í dag samning um sölu á 31,2% eignarhlut sínum í Borgun hf.  Söluverðið er 2.184 milljónir króna.

Í tilkynningu frá Landsbankanum segir að að kaupunum standi breiður hópur fjárfesta ásamt félagi á vegum stjórnenda Borgunar. „Borgun er leiðandi fyrirtæki í þróun og hagnýtingu lausna á sviði rafrænnar greiðslumiðlunar, en þessar breytingar hafa engin áhrif á viðskiptavini Borgunar eða rekstur félagsins. Kaupsamningurinn er gerður með fyrirvara um samþykki eftirlitsaðila, í samræmi við lög.“

Steinþór Pálsson, bankastjóri Landsbankans segir að undanfarin ár hafi Landsbankinn verið áhrifalaus minnihlutaeigandi í Borgun en Íslandsbanki átt meirihluta hlutafjár. „Í samræmi við sátt sem gerð var við Samkeppniseftirlitið árið 2008 eru miklar takmarkanir á aðkomu Landsbankans  sem hluthafa að starfsemi Borgunar. Ennfremur hefur það verið markmið samkeppnisyfirvalda að aðeins einn banki sé hluthafi í hverju greiðslukortafyrirtæki á hverjum tíma.  Þessi staða var óviðunandi fyrir Landsbankann og því teljum við þetta vera farsæla úrlausn fyrir bankann, félagið  og nýja eigendur.“

Magnús Magnússon, forsvarsmaður Eignarhaldsfélagsins Borgunar slf, segir að aðstandendur félagsins séu ánægðir með kaupin og vegferðin hafi verið til fyrirmyndar í alla staði.

Haukur Oddsson, forstjóri Borgunar, segir félagið líta breytt eignarhald jákvæðum augum. „Landsbankinn hefur verið góður en afar fjarlægur hluthafi, enda bundinn af samkomulagi við Samkeppniseftirlitið frá því 2008 um takmörkuð afskipti af rekstrinum. Þessi viðskipti eru í takt við þá þróun sem átt hefur sér stað í nálægum löndum, þar sem bankar hafa verið að selja eignarhluti sína í greiðslumiðlunarfyrirtækjum og telja starfsemi þeirra ekki lengur til kjarnastarfsemi.“






Fleiri fréttir

Sjá meira


×