Viðskipti innlent

Landsbankinn lokar afgreiðslu á Tálknafirði

Atli Ísleifsson skrifar
Frá Tálknafirði.
Frá Tálknafirði. Vísir/Vilhelm
Landsbankinn mun loka afgreiðslu sinni á Tálknafirði og verður síðasti opnunardagur föstudaginn 5. júní. Í tilkynningu frá bankanum segir að eftir sem áður geti viðskiptavinir bankans á sunnanverðum Vestfjörðum sótt þjónustu á Patreksfirði.

„Þessi breyting er til hagræðingar og einföldunar á rekstri Landsbankans og leiðir einnig af þeirri þróun sem á sér stað í bankastarfsemi, þar sem viðskiptavinir nýta sér rafræna þjónustu í síauknum mæli í stað þess að sækja í útibú eða afgreiðslur. Við þetta láta tveir starfsmenn af störfum, báðir í hlutastarfi.“

Afgreiðslan á Tálknafirði hefur heyrt undir útibúið á Patreksfirði og segir að að stórum hluta hafi þjónustu og ráðgjöf til viðskiptavina á Tálknafirði verði sinnt þar. Vegalengd á milli staðanna er átján kílómetrar.

„Undanfarin ár hafa þéttbýlisstaðirnir Bíldudalur, Tálknafjörður og Vesturbyggð smám saman orðið að einu atvinnusvæði og mörg af helstu þjónustufyrirtækjum á sunnanverðum Vestfjörðum eru á Patreksfirði,“segir í tilkynningunni.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×