Viðskipti innlent

Landsbankinn greiðir 24,8 milljarða í arð til eigenda

Sunna Kristín Hilmarsdóttir skrifar
Lilja Björk Einarsdóttir, bankastjóri Landsbankans.
Lilja Björk Einarsdóttir, bankastjóri Landsbankans. Vísir
Landsbankinn mun greiða eigendum sínum 24,8 milljarða í arð en þetta var samþykkt á aðalfundi bankans sem fram fór í gær. Ríkið er stærsti eigandi bankans og fer með rúmlega 98 prósenta eignarhlut. Mestur hluti arðsins fer því í ríkissjóð.

Í tilkynningu frá bankanum kemur fram að annars vegar sé um að ræða 13 milljarða króna arðgreiðslu vegna rekstrarársins 2016 en það sem samsvarar um 78 prósentum af hagnaði ársins. Hins vegar er svo um að ræða sérstakan arð til hluthafa að upphæð 11,8 milljarðar króna. Alls munu þá arðgreiðslur bankans á árunum 2013 til 2017 nema um 107 milljörðum króna.

Á aðalfundinum vour eftirtaldin kjörin aðalmenn í bankaráð Landsbankans:

•Berglind Svavarsdóttir

•Einar Þór Bjarnason

•Helga Björk Eiríksdóttir

•Hersir Sigurgeirsson

•Jón Guðmann Pétursson

•Magnús Pétursson

•Sigríður Benediktsdóttir

 

Helga Björk Eiríksdóttir var kjörin formaður bankaráðs.

„Aðalfundur samþykkti óbreytta starfskjarastefnu fyrir Landsbankann. Þá var samþykkt tillaga um að þóknun til bankaráðsmanna verði 400.000 kr. á mánuði, þóknun til stjórnarformanns verði 700.000 kr. á mánuði og þóknun til varaformanns verði 500.000 kr. Því til viðbótar skuli greiða bankaráðsmönnum 200.000 kr. á mánuði fyrir þátttöku í starfi undirnefnda bankaráðs en auk þess fái formenn undirnefnda bankaráðs greiddar 25.000 kr. á mánuði. Þóknun til varamanns í bankaráði verði 200.000 kr. fyrir hvern fund í bankaráði eða fund með Fjármálaeftirlitinu um hæfismat en þó aldrei hærri en þóknun aðalmanns innan hvers mánaðar. Greiðsla til hvers varamanns skal nema að lágmarki 400.000 kr. á ári.

 

Á fundinum var samþykkt heimild þess efnis að Landsbankinn eignist eigin hluti allt að 10% af nafnverði hlutafjár. Lægsta og hæsta fjárhæð sem Landsbankinn má reiða fram sem endurgjald fyrir hvern hlut skal vera bókfært virði hvers hlutar, þ.e. samsvara hlutfalli á milli eigin fjár sem tilheyrir hluthöfum bankans og hlutafjár, samkvæmt síðasta birta ársuppgjöri eða árshlutauppgjöri áður en kaup á eigin hlutum fara fram. Heimild þessi gildir fram að aðalfundi Landsbankans árið 2018. Ráðstöfun Landsbankans á eigin hlutum sem keyptir verða á grundvelli þessarar heimildar er háð samþykki hluthafafundar,“ segir í tilkynningu frá bankanum.


Tengdar fréttir






Fleiri fréttir

Sjá meira


×