Viðskipti innlent

Landsbankinn auglýsir eftir bankastjóra

Hafliði Helgason skrifar
Steinþór Pálsson, fyrrverandi bankastjóri Landsbankans.
Steinþór Pálsson, fyrrverandi bankastjóri Landsbankans.
Bankaráð Landsbankans hefur auglýst stöðu bankastjóra bankans lausa til umsóknar.

Auglýsing þess efnis er í atvinnuauglýsingum Fréttablaðsins í dag. Steinþór Pálsson, bankastjóri bankans, lét af störfum fyrir skemmstu og Hreiðar Bjarnason hefur verið starfandi bankastjóri síðan.

Farið er fram á að nýr bankastjóri búi yfir ótvíræðum leiðtoga- og stjórnunarhæfileikum og framúrskarandi hæfni í mannlegum samskiptum, auk menntunar og þekkingar á viðskiptaumhverfi og fjármálamarkaði.

Umsóknarfrestur er til 28. desember.

Fréttin birtist fyrst í Fréttablaðinu.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×