Landlæknir fékk ábendingu um 3 vistkonur óléttar eftir starfsmenn í Byrginu 27. desember 2006 18:30 Svo virðist sem Landlæknisembættið hafi ekki brugðist við ábendingu um 3 vistkonur óléttar eftir starfsmenn í Byrginu.
Landlæknir fékk fyrir fjórum árum ábendingu frá lækni um að þrjár konur sem voru í meðferð í Byrginu væru óléttar eftir starfsmenn þess. Svo virðist sem landlæknisembættið hafi ekkert gert við þær upplýsingar. Eins og fram kom í fréttum Stöpvar tvö í síðustu viku herma heimildir fréttastofu að fleiri en ein kona í meðferð í Byrginu hafi orðið barnshafandi eftir starfsmenn þar. Læknir á höfuðborgarsvæðinu sendi Landlæknisembættinu bréf þann 16. janúar 2003 þar sem hann segir að sér sé sagt að þrjár konur séu óléttar í Byrginu og að barnsfeðurnir muni vera starfsmenn staðarins. Skýrt er kveðið á um það í lögum að á svona stofnunum varði það allt að fjögurra ára fangelsi ef starfsmaður hefur samræði við vistmann. Þá tekur læknirinn einnig fram að hann hafi ítrekað heyrt frásagnir um ástarsambönd og kynferðisleg sambönd starfsmanna, bæði yfirmanna og meðferðaraðila, við sjúklinga eða vistmenn á Byrginu. Fréttastofa hafði samband við þáverandi aðstoðarlandlækni og hann rekur ekki minni til að brugðist hafi verið við þessari ábendingu. Í samtali við starfsmann landslæknisembættisins í dag var á það bent sem áður hefur komið fram að landlæknir hefur enga lögsögu yfir Byrginu enda telst það ekki heilbrigðisþjónusta. Því hafi embættið engar lagaheimildir til að kanna slíkar ábendingar sem þessar.
Fréttir Innlent Mest lesið „Fórnarlambið látið borga brúsann“ Innlent Safnað fyrir foreldra Bergs Ottós Innlent Skuldbundu sig í fjögur ár en farin eftir átján mánuði Innlent „Það vegast þarna á mjög erfið sjónarmið“ Innlent Bólga eftir bílbeltið leiddi til sýknu Innlent Aðalsteinn hleypur í skarðið Innlent Trúir ekki öðru en að nýir herrar fjarlægi „níðstöngina“ Innlent Enginn þurfi að óttast að vera skilinn frá maka sínum Innlent Telja Ríkisútvarpið bullandi hlutdrægt í ESB-málinu Innlent Vaxtaplanið sé tímaskekkja Innlent Fleiri fréttir Umdeild brottfararstöð leidd í lög Fimm úrskurðaðir í áframhaldandi gæsluvarðhald Hætta aftur rannsókn á Múlaborgarmálum Íbúar á flæðiskeri staddir eftir samdrátt í umsvifum Icelandair Telja Ríkisútvarpið bullandi hlutdrægt í ESB-málinu Landris og kvikusöfnun heldur áfram Trúir ekki öðru en að nýir herrar fjarlægi „níðstöngina“ Enginn þurfi að óttast að vera skilinn frá maka sínum Safnað fyrir foreldra Bergs Ottós Áfrýjar ekki dómi fyrir brot á Múlaborg Gervigreindin aukið hraða netsvika gríðarlega Góður gangur í fundarhöldum um þinglok Enn tekist á um þingstörfin og gervigreindin eykur hættuna á netglæpum Jóna Árný endurráðin bæjarstjóri „Fórnarlambið látið borga brúsann“ Skoða hvernig brotthvarfi Bandaríkjanna úr hafrannsóknum verður mætt Rúmlega átján þúsund skiluðu ekki framtali „Það vegast þarna á mjög erfið sjónarmið“ Rafvarnarvopn kom við sögu þar sem tilkynnandi um brot var handtekinn Vaxtaplanið sé tímaskekkja Bólga eftir bílbeltið leiddi til sýknu Skuldbundu sig í fjögur ár en farin eftir átján mánuði „Það þarf nú ansi mikið að ganga upp“ Þurfi frekar að gera meira fyrir konurnar heldur en að skrímslavæða þær Aðalsteinn hleypur í skarðið „Börn eiga aldrei að borga fyrir gjörðir foreldra sinna“ Vilhjálmur sagði af sér þingmennsku Andmæla fundarboði aðalfundar Sósíalista Konukot og börn í brottfararstöð í brennidepli í kvöldfréttum Séra Guðni Már kveður Ísland Sjá meira