Innlent

Landeigendur fá frest til sátta um Jökulsárlón

Garðar Örn Úlfarsson skrifar
Búist er við yfir 200 þúsund ferðamönnum að Jökulsárlóni í sumar en aðstaðan er ekki boðleg, segir bæjarstjóri Hornafjarðar.
Búist er við yfir 200 þúsund ferðamönnum að Jökulsárlóni í sumar en aðstaðan er ekki boðleg, segir bæjarstjóri Hornafjarðar. Fréttablaðið/Valli
„Þarna eru að koma yfir 200 þúsund gestir á sumri og það er gjörsamlega ófullnægjandi aðstaða til að veita þessu fólki venjulega og almennilega þjónustu,“ segir Björn Ingi Jónsson, bæjarstjóri Hornafjarðar, um deilur landeigenda og ferðaþjónustufyrirtækja við Jökulsárlón.

Dómur féll í júní í máli sameignarfélags landeigenda á hendur meðeiganda þeirra í jörðinni Felli, Einari Birni Einarssyni, sem á fyrirtækið Jökulsárlón ehf.

Sameignarfélagið vildi að samningi Einars frá árinu 2002 um landið við lónið yrði rift en því hafnaði héraðsdómur. Einar er ekki meðlimur sameignarfélagsins. Fleiri landeigendur hafa einnig sagt sig úr félaginu.

Sveitarfélagið lét í samvinnu við landeigendur deiliskipuleggja þjónustulóð við lónið í landi Fells. Einar Björn hefur sent inn hugmyndir og óskað eftir framkvæmdaleyfi og sameignarfélagið hefur fyrir sitt leyti samið við fasteignafélag um að byggja þjónustuna á sömu lóð við lónið.

„Við getum hvorugum veitt leyfi fyrr en samþykki allra liggur fyrir,“ segir Björn Ingi bæjarstjóri sem bendir á að allir landeigendurnir þurfi að samþykkja allar framkvæmdir á landinu. Þetta geri málið erfitt viðfangs en það sé aðkallandi og verði að leysa því aðstaðan sé ekki boðleg.

„Þetta er okkur ekki til sóma,“ segir Björn. „Við ætlum að senda öllum landeigendum bréf og skora á þá að finna einhverja leið til að við getum farið í einhverja uppbyggingu á grunni þessa deiliskipulags. Við ætlum helst ekki að gefa þeim frest nema fram á haustið.

Annar angi málsins er starfsemi samkeppnisaðila Jökulsárlóns ehf. Einar hefur nú krafist þess að sveitarfélagið Hornafjörður uppfylli „skyldur sínar og stöðvi starfsemi fyrirtækisins Ice Lagoon“ sem hóf rekstur ferðaþjónustu á sama stað og fyrirtæki Einars á austurbakka lónsins án þess að hafa leyfi fyrir sinni starfsemi.

„Lögfræðingur okkar segir að okkur sé ekki stætt á öðru en að gera það,“ segir Björn sem kveður Ice Lagoon hafa verið sent bréf á miðvikudag þar sem gefinn sé tíu daga andmælafrestur.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×