Bílar

Land Rover kærir kínverska eftiröpun Evoque

Finnur Thorlacius skrifar
LandWind X7 er algjör eftiröpun Land Rover Evoque.
LandWind X7 er algjör eftiröpun Land Rover Evoque.
Kínversku bílaframleiðendurnir Changan Auto og Jiangling Motors framleiða í samstarfi bíl sem nefndur er LandWind X7 og er hrein eftiröpun á Land Rover Evoque smájeppanum. Því ætlar Land Rover ekki að una og hefur nú kært framleiðendurna.

Þessir tveir kínversku framleiðendur eru í samstarfi við PSA/Peugeot-Citroën og Ford en kæra Land Rover snýr ekki beint að þeim þekktu fyrirtækjum en býr engu að síður til óþægilegt ástand milli þessara framleiðenda.

LandWind X7 eftiröpunin er miklu ódýrari bíll en Land Rover Evoque, sem einnig er seldur í Kína. Evoque kostar þar um 7,7 milljónir króna en LandWind X7  bíllinn aðeins 2,7 milljónir og er því nærfellt þrisvar sinnum ódýrari.

Eftiröpunin á Evoque en langt frá því einsdæmi hjá kínverskum bílaframleiðendum en þeir hafa til dæmis einnig apað eftir bílum frá Volkswagen, Cadillac og Ford, auk þess sem einn sportbíll þaðan er blanda af tilteknum bílgerðum frá Lotus, Lamborghini og Ferrari. Innrétting hans er reyndar eftiröpun frá Audi R8 og stýrið frá Opel. Þeim virðist því fétt heilagt er kemur að því að stela hönnun annarra.





Fleiri fréttir

Sjá meira


×