Enski boltinn

Lampard á leiðinni til Manchester City

Kristinn Páll Teitsson skrifar
Frank Lampard kvaddi stuðningsmenn Chelsea í vor eftir þrettán ára veru hjá félaginu.
Frank Lampard kvaddi stuðningsmenn Chelsea í vor eftir þrettán ára veru hjá félaginu. Vísir/Getty
Breski miðillinn Guardian greinir frá því í kvöld að Frank Lampard, fyrrum leikmaður Chelsea sé á leiðinni til Manchester City á lánssamning.

Lampard yfirgaf herbúðir Chelsea í sumar eftir að félagið bauð honum ekki nýjan samning og samdi við New York City í Bandaríkjunum. New York City fær hinsvegar ekki keppnisleyfi fyrr en á næsta ári og mun Lampard því vera lánaður til annars liðs fyrstu mánuðina.

Talið var að hann myndi elta liðsfélaga sinn hjá New York City, David Villa, til Melbourne City en Manchester City virðist ætla að stela honum fyrir framan nefið á ástralska liðinu.

Lampard lék í 13 ár með Chelsea og vann fjölmarga titla með félaginu á tíma sínum þar en hann lék rúmlega 600 leiki fyrir félagið.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×