Enski boltinn

Lampard: Hlakka til að mæta Gerrard í MLS

Tómas Þór Þóraðrson skrifar
Frank Lampard klárar tímabilið með City og heldur svo til Bandaríkjanna eins og Gerrard.
Frank Lampard klárar tímabilið með City og heldur svo til Bandaríkjanna eins og Gerrard. vísir/getty
Frank Lampard, miðjumaður Manchester City í ensku úrvalsdeildinni, fær ekkert sumarfrí í ár frekar en Steven Gerrard, fyrirliði Liverpool.

Þegar enska deildin klárast halda þeir til Bandaríkjanna þar sem Gerrard hefur sinn feril með MLS-meisturum Los Angeles Galaxy og Lampard byrjar að spila með New York City FC sem er í eigu Man. City.

Lampard er nú þegar farinn að hlakka til að mæta Gerrard, en þeir spiluðu lengi saman í landsliðinu og hafa auðvitað margoft mæst í ensku úrvalsdeildinni.

„Ég er ánægður fyrir hönd Stevie. Þetta eru góð skipti fyrir hann. Hvað getur hann meira gert fyrir Liverpool? Hann hefur átt frábæran feril,“ segir Lampard.

„Ég hlakka til að mæta Stevie. Við náum mjög vel saman, sérstaklega á seinni árum þegar við vorum fyrirliðar enska landsliðsins.“

„Ég ber gríðarlega mikla virðingu fyrir Gerrard og ég hlakka mikið til að spila á móti honum í Bandaríkjunum,“ segir Frank Lampard.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×