Bílar

Lamborghini dregur geitur í Ástralíu

Finnur Thorlacius skrifar
Margir bílar eru hentugir til dráttar aftanívagna en Lamborghini Murcielago er líklega ekki einn þeirra. Það hindraði ekki bónda einn í Ástralíu til að nota Lamborghini bíl sinn til dráttar á kerru fulla af geitum á milli staða.

Bíllinn ætti að hafa nægt afl til dráttar ekki stærri kerru en þetta, en hann er með 572 hestöfl undir vélarhlífinni sem koma frá 6,2 lítra V-12 vél. Auk þess er bíllinn fjórhjóladrifinn svo veggripið ætti einnig að vera nægt.

Þetta ætti að duga til að gefa geitunum skemmtilegan ökutúr, en það eru ekki margar geitur heimsins sem fá eins virðulegan farskjóta til að skutla sér á milli staða. Geiturnar virðast njóta ökuferðarinnar og liggja sultuslakar á kerrunni í brakandi sólinni í Ástralíu. Sjá má ökuferð þeirra hér að ofan.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×