Lífið

Lamar Odom sást opinberlega í fyrsta skiptið síðan hann var lagður inn á sjúkrahús

Birgir Olgeirsson skrifar
Khloe Kardashian ásamt Lamar Odom í Madison Square Garden í gærkvöldi.
Khloe Kardashian ásamt Lamar Odom í Madison Square Garden í gærkvöldi. Vísir/Getty
Fyrrverandi körfuknattleiksmaðurinn Lamar Odom lét sjá sig í fyrsta skiptið opinberlega í gær síðan hann missti meðvitund á vændishúsi í Las Vegas í Bandaríkjunum í október í fyrra.

Odom mætti á tískusýningu Kanye West í Madison Square Garden í New York í gær ásamt konu sinni Khloé Kardashian, en hún er systir Kim Kardashian sem er gift Kanye West.

Odom er sagður hafa náð miklum framförum í endurhæfingu eftir að hann var útskrifaður af Cedars-Sinai-sjúkrahúsinu í janúar síðastliðnum. Hann er þó sagður eiga langt í land við að ná fyrri heilsu.


Tengdar fréttir

Odom að byrja í sjúkraþjálfun

Fyrrum leikmaður LA Lakers og Clippers, Lamar Odom, er á ágætum batavegi eftir að hafa verið fundinn meðvitundarlaus á vændishúsi rétt fyrir utan Las Vegas.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×