Lífið

Lágstemmt jólakort frá Playboy-kónginum

Lilja Katrín Gunnarsdóttir skrifar
Jólakortið í ár er mjög líkt jólakortinu í fyrra.
Jólakortið í ár er mjög líkt jólakortinu í fyrra.
Playboy-kóngurinn Hugh Hefner, 88 ára, og eiginkona hans, Crystal Harris, 28 ára, stilla sér upp með hundum sínum tveimur, Lady og Charlie, á jólakortinu í ár.

Hjónin eru klædd í svart og rautt og virðast afar ástfangin á jólakortamyndinni.

Í fyrra voru hjónin í náttfötum í stíl á jólakortinu en þá fékk Charlie bara að vera með þar sem Lady var ekki komin inn í fjölskylduna.

Crystal og Hugh gengu í það heilaga á gamlárskvöld árið 2012 og fagna því tveggja ára brúðkaupsafmæli sínu þessi jólin. Hugh hefur aldrei verið jafn ástfanginn.

„Ég er svo heppinn að hafa fundið hana á þessum tímapunkti í mínu lífi. Ég geymdi það besta til síðast,“ sagði Hugh í viðtali við Esquire í mars í fyrra.

Jólakortið síðan í fyrra.





Fleiri fréttir

Sjá meira


×