Fótbolti

Lagerbäck: Leikmenn vilja ekki heyra þegar þeir eru ófaglegir

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Lagerbäck á blaðamannafundi í Annecy í Frakklandi.
Lagerbäck á blaðamannafundi í Annecy í Frakklandi. Vísir/Vilhelm
Lars Lagerbäck, fráfarandi landsliðsþjálfari, segir að hann hafi notað fjölmiðla til að koma ákveðnum skilaboðum inn í leikmannahóp íslenska landsliðsins. Þetta segir hann í samtali við Vísi.

Nærtækasta dæmið er þegar hann sagði frá því á blaðamannafundi í Annecy, á meðan EM í Frakklandi stóð, að leikmenn hefðu komið of seint í kvöldmat skömmu eftir sigurinn á Englandi í 16-liða úrslitum.

„Besta leiðin til að fá leikmenn á tærnar er að segja að hann sé ekki 100 prósent fagmannlegur,“ segir Lagerbäck. „Leikmenn vilja ekki heyra það.“

„Ég hef notað nokkur smáatriði, til dæmis eins og þegar leikmenn mættu 20-25 mínútum of seint í mat. Mér fannst það vanvirðing,“ segir hann enn fremur en málið var tekið fyrir á liðsfundi daginn fyrir umræddan blaðamannafund.

Hann segir þó að gleymska sé eðlilegur þáttur þegar um svona stóran hóp ræðir og að málið hafi ekki alvarlegt.

„Gleymska er ekki afsökun en það er mannlegt að gleyma hlutum. Það geri ég líka sjálfur,“ segir hann og bætir við að hann hafi stundum notað fjölmiðla til að koma ákveðnum skilaboðum til skila, bæði til leikmanna og einnig andstæðinga.

„Ég reyni að gera það af og til. Ef mér finnst það góð hugmynd þá geri ég það,“ segir Lagerbäck en ummæli hans um leikaraskap Pepe og Cristiano Ronaldo fyrir leik Íslands og Portúgals vöktu athygli.

„Ég vildi koma þessu út. Ef maður talar um svona lagað þá getur maður haft áhrif - á leikmenn, dómara og þá sem stýra dómgæslu. Varðandi dæmið með Portúgal þá fékk ég meira að segja viðbrögð frá þjálfara Portúgals. Tilgangurinn var að fá viðbrögð og ég fékk viðbrögð. Mér fannst það ganga ágætlega.“

Og virkaði þetta að þínu mati?

„Ég sá ekki mikið af leikaraskap í leiknum okkar gegn Portúgal. Kannski að þetta hafði einhver áhrif.“

Ítarlegt viðtal Fréttablaðsins við Lars Lagerbäck, sem birtist laugardaginn 16. júlí, má sjá hér fyrir neðan. Næstu daga á Vísi verður áfram rætt við Lagerbäck um ýmis mál sem snerta íslenska karlalandsliðið í knattspyrnu, EM í Frakklandi og stöðu íþróttarinnar á Íslandi.


Tengdar fréttir

Lars Lagerbäck: Alvöru prófraun fyrir íslenska knattspyrnu

Lars Lagerbäck skilur nú við íslenska karlalandsliðið eftir mesta velmegunarskeið í sögu þess. Hann gerir upp árin sín hjá KSÍ og segir við þessi tímamót að nú þurfi að nýta þann mikla meðbyr sem nú nýtur við til þess að efla




Fleiri fréttir

Sjá meira


×