Fótbolti

Lagerbäck valdi ekki Ödegaard í fyrsta landsliðshópinn

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Lars Lagerbäck er búinn að skipta úr íslensku fánalitunum í þá norsku.
Lars Lagerbäck er búinn að skipta úr íslensku fánalitunum í þá norsku. Vísir/AFP
Lars Lagerbäck, nýr landsliðsþjálfari Noregs, valdi ekki ungstirnið Martin Ödegaard í sinn fyrsta leikmannahóp.

Noregur mætir Norður-Írlandi á útivelli í næstu viku en Norðmenn hafa unnið aðeins einn af fyrstu þremur leikjum sínum í riðlinum.

Hann valdi alls 24 leikmenn í hópinn en Ödegaard mun þess í stað spila með U-21 liði Noregs á sama tíma.

Ödegaard er átján ára en sló í gegn fyrir þremur árum síðan er hann varð yngsti leikmaður norsku úrvasdeildarinnar og norska landsliðsins. Stærstu félög heims slógust um hann en hann ákvað að semja við Real Madrid og gekk í raðir spænska stórveldisins árið 2015.

Sjá einnig: Landsliðsstjarna Noregs vonar að Lagerbäck herði leikmenn

Hann hefur aðeins tvisvar fengið tækifæri með aðalliði Real Madrid og var lánaður til Heerenveen í Hollandi í upphafi ársins. Þar hefur hann samtals spilað tíu leiki til þessa.

„Leikmennirnir sem ég valdi nýtast betur í leik gegn Norður-Írlandi á útivelli,“ sagði Lagerbäck á blaðamannafundi í gær. „Það er þó ekkert útilokað fyrir framtíðina,“ sagði hann enn fremur um stöðu Ödegaard.

„Maður verður að velja þann sem eru best til þess fallnir að spila. Það gæti líka verið betra fyrir Ödegaard að spila í 90 mínútur með U-21 liðinu en að sitja á bekknum með A-liðinu.“

Hér má sjá fyrsta landsliðshóp Lagerbäck með Noregi:

Markverðir: Rune Almenning Jarstein, André Hansen, Ørjan Nyland.

Varnarmenn: Jonas Svensson, Omar Elabdellaoui, Fredrik Semb Berge, Vegar Eggen Hedenstad, Jørgen Skjelvik, Gustav Valsvik, Even Hovland, Tore Reginiussen.

Miðjumenn: Sander Berge, Jo Inge Berget, Veton Berisha, Mats Møller Dæhli, Mohamed Elyounoussi, Markus Henriksen, Stefan Johansen, Anders Konradsen, Håvard Nordtveit.

Sóknarmenn: Adama Diomande, Tarik Elyounoussi, Joshua King, Alexander Søderlund.


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×