Viðskipti innlent

Lætur af störfum eftir níu mánuði í starfi

Stefán Árni Pálsson skrifar
Kristrún Heimisdóttir.
Kristrún Heimisdóttir.
Kristrún Heimisdóttir lætur nú af störfum sem framkvæmdastjóri Samtaka iðnaðarins samkvæmt samkomulagi við stjórn samtakanna en þetta kemur fram í tilkynningu frá Samtökum Iðnaðarins.

„Ég vil fyrir hönd stjórnar Samtaka iðnaðarins þakka Kristrúnu fyrir góð störf hennar í þágu SI og óska henni góðs gengis í framtíðinni,” segir Guðrún Hafsteinsdóttir, formaður Samtaka iðnaðarins.

Kristrún tók við starfinu í lok nóvember og hefur því aðeins gegnt starfinu í níu mánuði.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×