Erlent

Læstu einhverfa tvíbura í kjallara

Samúel Karl Ólason skrifar
John og Janice Land, læstu einhverfa syni sína í kjallara á kvöldin í sex ár.
John og Janice Land, læstu einhverfa syni sína í kjallara á kvöldin í sex ár. Vísir/AP
Lögregluyfirvöld í Maryland í Bandaríkjunum segja hjón hafa læst einhverfa tvíbura sína í kjallara á næturna. Engin húsgögn voru í kjallaranum og aðeins einn lítill gluggi.

AP fréttaveitan segir dómsgögn benda til þess að John og Janice Land hafi verið sleppt gegn tryggingu, en þau hafa verið ákærð fyrir frelsissviptingu og fyrir að níðast á varnarlausum einstaklingum.

Upp komst um hjónin þegar lögreglan kom í óskildum tilgangi á heimili þeirra. Lögregluþjónar urðu þá varir við sterka hlandlykt úr kjallaranum.

John Land sagði lögregluþjónunum að synir hans gætu ekki tjáð sig og ættu til að strjúka. Hann sagðist einnig hafa byrjað að læsa þá inni klukkan tíu á kvöldin fyrir um sex árum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×