Lærisveinar Ólafs steinlágu fyrir dönsku meisturunum | Kristinn Freyr og Árni báðir í byrjunarliðum Elías Orri Njarðarson skrifar 22. júlí 2017 20:15 Hannes Þór og liðsfélagar hans töpuðu á móti FCK visir/getty
Halmstad- GIF Sundsvall 2-2 Halmstad og GIF Sundsvall skildu jöfn 2-2 í dag í sænsku úrvalsdeildinni í fótbolta. Sundsvall sat í 13. sæti fyrir leik með 14 stig og Halmstad í sætinu fyrir neðan með 8 stig. Kristinn Freyr Sigurðsson var að vanda í byrjunarliði Sundsvall en fór af velli á 66. mínútu. Heimamenn í Halmstad komust yfir strax á 12. mínútu með marki frá Marcusi Mathisen. Þeir bættu svo við öðru marki sínu eftir 27 mínútna leik og útlitið ekki gott fyrir Sundsvall. Eric Larsson lagaði svo stöðuna 2-1 á 39. mínútu þegar að hann minnkaði muninn og leikurinn jafnaðist út. Rétt fyrir lok fyrri hálfleiks jafnaði svo Marcus Danielsson metin fyrir Sundsvall og staðan var 2-2 þegar flautað var til hálfleiks. Marcus Mathiesen fékk svo sitt annað gula spjald á 70. mínútu og Halmstad spiluðu því einum manni færri seinstu 20 mínúturnar en leikmenn Sundsvall náðu ekki að nýta sér muninn og leikurinn endaði með 2-2 jafntefli.Malmö- Jönköpings 2-0 Árni Vilhjálmsson og félagar í Jönköpings mættu í heimsókn til Malmö. Malmö sat í efsta sæti deildarinnar fyrir leik með sex stiga forskot á AIK meðan að Jönköpins sátu í 12 sætinu. Árni Vilhjálmsson var í fremstu víglínu Jönköpings en var skipt útaf eftir aðeins rúmlega 20 mínútna leik. Hvorugt liðanna náði að skora í fyrri hálfleik og stíflan brást ekki fyrr en á 67. mínútu þegar að Anders Christiansen kom Malmö yfir. Magnus Wolff Eikrem kom svo Malmö í tveggja marka forystu þegar að hann skoraði á 74. mínútu. Fleiri urðu mörkin ekki, góður sigur Malmö sem tryggðu sér gott forskot á AIK í toppbaráttunni.Randers FC- FC Kobenhavn 0-3 Lærisveinar Ólafs Kristjánssonar steinlágu fyrir dönsku meisturunum í FC Kaupmannahöfn í annarri umferð dönsku úrvalsdeildarinnar í dag. Bæði lið voru með eitt stig eftir fyrstu umferðina fyrir leikinn. Hannes Þór Halldórsson stóð í marki Randers í leiknum. Pieros Sotiriou kom meisturunum yfir strax á 9. mínútu leiksins með fínu skallamarki. Staðan var 0-1 þegar að blásið var til loka fyrri hálfleiks. Andrija Pavlovic jók svo forskot FCK þegar að hann skoraði annað mark liðsins eftir sendingu frá Benjamin Verbic. Pieros Soitriou bætti svo við sínu öðru marki í leiknum og þriðja marki FCK í uppbótartíma. Randers situr í 10. sæti deildarinnar eftir leikinn í dag en umferðin klárast svo á morgun með fimm leikjum. FCK situr eins og er á toppi deildarinnar með 4 stig en lið Bröndby á leik á morgun og getur með sigri hreppt fyrsta sætið.
Fótbolti Mest lesið Booker um sparkið í stellið: „Partur af körfuboltanum en þetta var allt of mikið“ Körfubolti Dagný ánægð að vera mætt aftur til æfinga Enski boltinn „Þurfum á öllum að halda fyrir loka áhlaup í deildinni“ Fótbolti „Hlakka rosalega til að sjá troðfullt hús á mánudaginn“ Körfubolti Þjálfari Hákon Arnars: „Áttum skilið að fara áfram“ Fótbolti Ósáttur með dómara leiksins: „Eins og að spila gegn fjórtán mönnum“ Fótbolti Ramos rekinn úr húsi fyrir að sparka í klof Bookers Körfubolti Liverpool úr leik þrátt fyrir sigur á Ítalíu Fótbolti Uppgjör og viðtöl: Njarðvík - Þór Þ. 107-110 | Þórsarar sigri frá undanúrslitum Körfubolti Leverkusen neitar að tapa Fótbolti Fleiri fréttir Dagný ánægð að vera mætt aftur til æfinga Þjálfari Hákon Arnars: „Áttum skilið að fara áfram“ „Þurfum á öllum að halda fyrir loka áhlaup í deildinni“ Ósáttur með dómara leiksins: „Eins og að spila gegn fjórtán mönnum“ Rómverjar svífa um á bleiku skýi De Rossi Liverpool úr leik þrátt fyrir sigur á Ítalíu Leverkusen neitar að tapa Hákon Arnar lagði upp þegar Lille féll úr leik eftir vítaspyrnukeppni Markadrottningin mun ná þrettán árum hjá franska félaginu Hjartað var ekki vandamálið þegar Roma maðurinn hneig niður Slakt gengi City, Arsenal og Liverpool í Evrópu slæmar fréttir fyrir United Sjáðu ótrúlega vítakeppni gærkvöldsins: „Vá hvað þetta var skrýtið“ Neville orðlaus: „Var þetta gert opinbert á sínum tíma?“ Besta-spáin 2024: Svífa áfram á bleika skýinu Segir að Haaland hafi beðið um skiptingu Læknar sögðu Arnór heppinn að ekki skyldi hafa farið verr Besta-spáin 2024: Ekkert Murr Murr Klopp ætlar rifja upp frægu Barcelona ræðu sína í kvöld Skulda Ronaldo meira en milljarð og hafa kannski ekki efni á Alberti „Er eiginlega ennþá í sjokki“ Romário tekur fram skóna til að spila með syninum „Þetta er töfrum líkast“ „Ég get ekki fundið réttu orðin“ Real sló meistarana úr leik eftir vítakeppni Kimmich tryggði Bayern sæti í undanúrslitum Öruggt hjá Chelsea sem jafnaði City á toppnum Þrenna frá Maríu þegar Fortuna flaug í bikarúrslit Þróttarar kjósa um nýtt merki Forseti Frakklands setur pressu á Real Madrid Arteta segir að sigur á Bayern myndi breyta Arsenal Sjá meira