Handbolti

Lærisveinar Geirs unnu Hamburg

Stefán Árni Pálsson skrifar
Geir Sveinsson stýrði sínu liði til sigurs í dag.
Geir Sveinsson stýrði sínu liði til sigurs í dag. vísir/getty
Lærisveinar Geirs Sveinssonar í Magdeburg unnu frábæran sigur, 32-28, á Hamburg í þýsku úrvalsdeildinni í handknattleik í dag.

Staðan í hálfleik var 14-11 fyrir heimamenn í Magdeburg en liðið er með átta stig í áttunda sæti deildarinnar. Hamburg er með sjö stig í því tíunda.

Matthias Musche gerði sjö mörk fyrir Magdeburg í leiknum í dag en Adrian Pfahl var með átta mörk fyrir Hamburg. 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×