Bíó og sjónvarp

Lærði að skjóta úr byssu

Katie Holmes þurfti að læra að skjóta úr byssu fyrir tökur á sinni nýjustu mynd, Miss Meadows.

Leikkonan, sem er 35 ára, hafði mjög gaman af því að leika í myndinni, sem fjallar um kennara sem bregður sér í hlutverk sjálfskipaðs löggæslumanns á kvöldin.

„Miss Meadows er öðruvísi persóna en ég hef áður leikið vegna þess að hún er frekar fyndin. Kennari sem tekur lögin í eigin hendur þegar hún sér barn verða fyrir ofbeldi. Það var gaman að leika hana og svo lærði ég líka að skjóta úr byssu,“ sagði hún.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×