Innlent

Læra köfun og brimbrettareið í Menntaskólanum á Tröllaskaga

Sveinn Arnarsson skrifar
Útivstaráfanginn leyfir nemendum að kljást við margvíslegar þrautir.
Útivstaráfanginn leyfir nemendum að kljást við margvíslegar þrautir. Mynd/MTR
Menntaskólinn á Tröllaskaga, sem hóf störf árið 2010 fer ótroðnar slóðir uppbyggingu áfanga við skólann. Einn áfanginn er tileinkaður útivist þar sem nemendum er boðið upp á nám í útivist þar sem áfanginn er að mestu leyti verklegur. Nemendur kynnast undistöðuatriðum í fjölda áhugaverðra tómstunda, svo sem klettaklifri, sigi, brimbrettareið, sjósundi og fjallamennsku, svo dæmi séu tekin.

Í vikunni var nemendum kennd köfun í sundlauginni í Ólafsfirði og léku sér á brimbrettum í firðinum. Nemendur taka þessum áfanga vel þar sem mikil áhersla er lögð á að þeir verði sjálfstæðir í óbyggðum, geti metið aðstæður, til að mynda við breytt veðurskilyrði með tilliti til öryggis og taka skynsamlegar ákvarðanir varðandi leiðarval og notkun öryggisbúnaðar.

Lára stefánsdóttir, skólameistar Menntaskólans á Tröllaskaga, segir þennan áfanga vera mjög vinsælan hjá nemendum þar sem þau tileinka sér mikla þekkingu. "Þessi áfangi veitir nemendum mikla og góða þekkingu sem mun nýtast þeim vel í framtíðinni. Verkleg þekking sem þessi má ekki vanmeta á nokkurn hátt. Þarna fá þau að kljást við náttúruna í allri sinni dýrð og læra að meta hvað hún hefur upp á að bjóða."

Nemendur lærðu köfun í vikunni í sundlaug ÓlafsfjarðarMynd/MTR
Kraftur í unga fólkinu.

"Við höfum látið þau fara í helgarferð yfir í Héðinsfjörð þar sem þau verða að skipuleggja helgi fjarri alfaraleið þar sem nemendur verða að spjara sig sjálfir. Þar hafa þau gist í fjallaskálum og einnig höfum við farið með þau í tjaldgistingu í snjó. Auðvitað er það gert undir handleiðslu vanra einstaklinga og gætt fyllsta öryggis. En í ferðum sem þessum verða þau að reiða sig á hópinn og vinna vel saman að ákveðnu markmiði. Þetta hefur gefist vel og nemendur eru ánægðir með að breyta til."

Áfanginn kemur ekki í stað hinna venjubundnu íþróttatíma, heldur er þett hluti af íþrótta og útivistarbraut skólans. Að námi loknu eiga nemendur að vera búin að öðlast þekkingu á helsta útbúnaði til útivistar, ferðast um óbyggðir á öruggan og ábyrgan hátt, metið aðstæður og tekið skynsamlegar ákvarðanir í samræmi við þær. Einnig leggur skólinn mikið upp úr því að nemendur geti tekið virkan þátt í upplýstri umræðu og rökræðu um málefni er tengjast náttúru og útivist.

Mynd/MTR
Mynd/MTR
Mynd/MTR
Mynd/MTR
Mynd/MTR



Fleiri fréttir

Sjá meira


×