Körfubolti

Læknisskoðun að baki hjá Jóni Arnóri

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Jón Arnór keyrir á spænska risann Pau Gasol í leik gegn Spánverjum á EM í Berlín.
Jón Arnór keyrir á spænska risann Pau Gasol í leik gegn Spánverjum á EM í Berlín. Vísir/Valli
Jón Arnór Stefánsson, landsliðsmaður Íslands í körfubolta og nýjasti liðsmaður Valencia Basket Club, er mættur til spænsku borgarinnar á austurströnd Spánar. Hann gekkst undir allsherjar læknisskoðun hjá félaginu í dag þar sem hann var myndaður í bak og fyrir auk þess sem hann gekkst undir þolpróf.

Jón Arnór, sem fór á kostum með karlalandsliðinu á Evrópumótinu í Berlín, sagði í samtali við Vísi í kvöld að skoðunin hefði gengið vel. Nú tæki við einn frídagur á morgun áður en hann æfir með nýjum liðsfélögum sínum á föstudag.

„Ég fékk einn aukafrídag,“ sagði Jón Arnór sem kenndi sér aðeins í hægra hné eftir tapið gegn Ítölum í hörkuleik í Berlín. Meiðslin höfðu þó lítil áhrif á frammistöðu hans gegn Serbum og Tyrkjum.

Jón Arnór spilaði fimm leiki á sex dögum með íslenska landsliðinu á EM í Berlín og fór á kostum.Vísir/Valli
Smá bólga og vökvi - ekkert alvarlegt

„Það þurfti aðeins að sprauta í hnéð,“ sagði Jón Arnór sem fór í segulómskoðun vegna meiðslanna. Þar fékkst staðfest að ekkert alvarlegt væri á ferðinni heldur myndaðist aðeins bólga og vökvi vegna núnings hnéskeljar við brjóskið.

Jón Arnór hélt utan til Valencia í gær og hitti þá nýju liðsfélagana. Jón Arnór þekkir ágætlega til í Valencia en hann samdi við félagið, sem þá hét Pamesa Valencia, til þriggja ára sumarið 2006. Hann átti þó erfitt uppdráttar þar meðal annars vegna meiðsla á ökkla sem hann varð fyrir í landsleik og yfirgaf félagið í febrúar 2007.

Landsliðsmaðurinn samdi til þriggja mánaða við spænska félagið en telja má afar líklegt að félagið vlji tryggja sér þjónustu hans til lengri tíma áður en langt um líður. Jón Arnór var kjörinn íþróttamaður ársins í janúar síðastliðnum en hann leikur nú með ellefta liði sínu á fjórtán ára atvinnumannaferli.

Að neðan má sjá Jón Arnór í læknisskoðuninni í dag.

Le presentaremos el viernes en el KM.0 del “Circuit 5K Jardí del Túria”. Tramo 11 bajo puente Ángel Custodio. ¿Te...

Posted by Valencia Basket Club on Wednesday, September 16, 2015

Tengdar fréttir

Jón Arnór semur við Valencia

Jón Arnór Stefánsson, íþróttamaður ársins 2014, er búinn að gera þriggja mánaða samning við Valencia í ACB-deildinni.

Jón Arnór: Eftir svona mót vill maður ekkert hætta

Jón Arnór Stefánsson stóð fyrir sínu þegar íslenska körfuboltalandsliðið tapaði með níu stiga mun, 111-102, fyrir Tyrklandi eftir framlengdan leik á Evrópumótinu í Berlín í kvöld.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×