Innlent

Læknir ekki framseldur þótt hún yrði dæmd sek

Snærós Sindradóttir skrifar
Ingibjörg Ólöf Vilhjálmsdóttir verjandi konunnar.
Ingibjörg Ólöf Vilhjálmsdóttir verjandi konunnar. mynd/aðsend
Íslensk kona sem er ákærð fyrir morðtilraun í Ungverjalandi segir að málið hafi haft áhrif á hana á allan mögulegan hátt. Hún eigi erfitt með vinnu og að sinna fjölskyldu sinni.

Konan er á fertugsaldri og er starfandi læknir hér á landi. Hún var í læknisnámi í Debrecen, næststærstu borg Ungverjalands, árið 2012 þegar atvikið átti sér stað sem síðar leiddi til ákæru á hendur henni. Samkvæmt ungverskum fjölmiðlum er henni gefið að sök að hafa byrlað nígerískri vinkonu sinni svefnlyf og barið hana í höfuðið með hamri. Konan vísar þessu alfarið á bug.

„Hún í rauninni telur að þarna hafi verið sviðsettur glæpur. Það er ekki um að ræða höfuðkúpubrot í þessu máli. Þarna er um að ræða, að mér skilst, nokkur spor í höfuðið og það eru áverkar sem umbjóðandi minn telur að fórnarlambið svokallaða hafi valdið sér sjálf,“ segir Ingibjörg Ólöf Vilhjálmsdóttir, verjandi konunnar.

„Þetta er hið hræðilegasta mál í raun og veru. Hún er ásökuð um mjög alvarlegan glæp sem hún segir sjálf að hún hafi ekki framið. Þannig að eðlilega er hún í miklu uppnámi, þetta er mjög alvarlegt mál.“

Ingibjörg segir að rannsókn málsins ytra sé ábótavant. Konunni hafi hingað til gengið illa að koma sinni hlið málsins á framfæri við stjórnvöld. Þá hafi sönnunargögnum sem hún hafi reynt að koma á framfæri ekki verið gefinn gaumur og sýni, sem hefðu verið tekin í sambærilegu máli hér á landi, ekki verið tekin.

„Það átti að dæma í málinu í síðasta mánuði en eftir að ungversk yfirvöld komust á snoðir um það að íslensk yfirvöld vissu af málinu þá var því frestað,“ segir Ingibjörg. Aðspurð hvers vegna hún telji að svo sé segir hún: „Það er góð spurning. Ég held að það sé svona spurning um að leggja saman einhverjar tölur þarna. Það styður það sem hún segir að þarna er einhver undarleg málsmeðferð í gangi.“

Konan er starfsmaður Heilbrigðisstofnunar Suðurlands (HSU). Henni hefur nú verið veitt leyfi frá störfum.  Samkvæmt 2. gr laga um framsal sakamanna má ekki undir neinum kringumstæðum framselja íslenska ríkisborgara. Fari svo að konan verði dæmd í Ungverjalandi á hún því ekki á hættu að vera send þangað til að afplána dóminn. Vafi ríkir um hvort hún myndi yfirhöfuð afplána neinn dóm.

Fyrirtaka í málinu fer fram í nóvember á undirdómstigi sem svipar til héraðsdóms hér á landi.


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×