Innlent

Læknaráð segir framlag til Landspítalans ófullnægjandi

Samúel Karl Ólason skrifar
Vísir/Vilhelm
Læknaráð Landspítalans lýsir yfir þungum áhuggjum af ófullnægjandi ríkisframlagi til spítalans í fjárlagafrumvarpi næsta árs. Ráðið telur að það geti hafi alvarlegar afleiðingar fyrir starfsemi og faglega stöðu heilbrigðisþjónustu í landinu. Þá segir stjórn ráðsins að Alþingi verði að bregðast við.

Í tilkynningu frá læknaráði segir að vöxtur í starfsemi Landspítalans haldi áfram eins og við sé að búast miðað við fjölgun landsmanna, öldrun þjóðarinnar, aukna byrði langvinnra sjúkdóma og fjölgun ferðamanna.

Þá segir að útgjaldarammi spítalans í frumvarpinu sé ekki í takt við þessa þróun.

Á föstu verðlagi sé framlag til reksturs fyrir árið 2017 sambæranlegt við árið 2005, en 2,8 milljörðum lægra en 2008.

„Þetta telur læknaráð Landspítala óásættanlegt og ógn við það hlutverk sem sjúkrahúsinu er ætlað að gegna. Uppsöfnuð viðbótarfjárþörf Landspítalans 2017 er metin tæpir 12 milljarðar króna miðað við fjárlög 2016 og alls 66 milljarðar króna á næstu 5 árum.“

Enn fremur segir ráðið að án slíkrar innspýttingar í rekstur spítalans sé hætta á ófullnægjandi framþróun í heilbrigðisþjónustu í landinu. Þá kalli núverandi frumvarp á samdrátt og skerðingu þjónustunnar. Það sé ógn við öryggi sjúklinga og heilbrigðiskerfi landsmanna til lengri og skemmri tíma.

Þá bendir læknaráð á að núverandi fjárlagafrumvarp sé í fullkominni andstöðu við yfirlýsingar forsætisráðherra og annarra sem undirrituð var í tengslum við kjarasamning lækna í byrjun árs 2015.

Þar stóð: „Heilbrigðiskerfið búi við sambærilegan ramma hvað varðar fjármuni og fjölda starfsmanna og önnur Norðurlönd“.

Hins vegar séu útgjöld til heilbrigðismála á Íslandi 8,8 prósent af vergri landsframleiðslu en 9,6 til 11,1 prósent á hinum Norðulöndunum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×