Innlent

Læknar segja ástandið ólíðandi

sunna karen sigurþórsdóttir skrifar
Félagið segist harma þá stöðu sem stjórnvöld hafa sett íslenskt heilbrigðiskerfi í.
Félagið segist harma þá stöðu sem stjórnvöld hafa sett íslenskt heilbrigðiskerfi í. vísir/gva
Stjórn Félags almennra lækna (FAL) lýsir yfir stuðningi við kjarabaráttu heilbrigðisstétta og skorar á stjórnvöld að ganga að samningaborðinu sem fyrst. Ástand sem þetta líðist ekki lengur. Þetta kemur í ályktun frá félaginu.

Félagið segist harma þá stöðu sem stjórnvöld hafa sett íslenskt heilbrigðiskerfi í. Verkföll mikilvægra stétta innan heilbrigðisgeirans hafi staðið of lengi og haft lamandi áhrif á þjónustu við sjúklinga. „Nú þegar verkfall hjúkrunarfræðinga er skollið á telur stjórn FAL að botninn hafi tekið úr,“ segir í ályktuninni.

Verkfall tvö þúsund og eitt hundrað hjúkrunarfræðinga skall á miðnætti, og hefur haft áhrif á heilbrigðisstofnanir um land allt. Þá hefur verkfall hátt í fimm hundruð félagsmanna BHM, sem starfa á spítalanum, staðið yfir í ríflega sjö vikur.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×