Innlent

Læknanemar gagnrýna LÍN-frumvarp

Hulda Hólmkelsdóttir skrifar
Félag læknanema fagnar frumvarpinu en telur það þó vera ófullkomið.
Félag læknanema fagnar frumvarpinu en telur það þó vera ófullkomið. vísir/vilhelm
Félag læknanema setur alvarlegar athugasemdir við frumvarp um nýtt fyrirkomulag námslána. Í umsögn sinni um fruvarpið fagnar félagið því að verið sé að endurskoða núverandi námslánakerfi en setur varnagla á þrennt sem sérstaklega varðar hagsmuni læknanema.

Í fyrsta lagi setur félagið athugasemd við að hámarkseiningafjöldi sem lánað sé fyrir lækki úr 480 ECTS einingum í 420.

„Þýðir það að læknanemar sem stunda annað háskólanám í fleiri en fjórar annir áður en þeir komast inn í Læknadeild geta ekki tekið námslán allan námstímann sinn. Samkvæmt könnun sem Félag læknanema lagði fyrir læknanema sjá 7% læknanema fyrir sér að taka námslán lengur en 7 ár. Nýtt frumvarp mun því skerða möguleika um 7% læknanema til þess að stunda nám, “ segir í umsögninni.

Þá gagnrýnir félagið einnig að námsstyrkur sé einungis veittur í níu mánuði á hverju skólaári, en námsárið í Læknadeild er lengar en í mörgum öðrum deildum Háskóla Íslands. Það getur verið allt frá 9,25 mánuðum upp í 9,75 mánuði. Félagið bendir á að taka verði tillit til að læknanemum gefist styttri tími til að vinna á sumrin og að námsstyrkurinn dreifist yfir lengra námstímabil.

„Gert er ráð fyrir 65.000 kr mánaðarlegum styrk í frumvarpinu sem greiðist út þegar tilskildum námsframvindukröfum hefur verið náð. Sú upphæð væri lægri hjá læknanemum við Háskóla Íslands. Læknanemar fengju því ekki 100% framfærslu með nýju námslánakerfi eins og nemendur í öðrum námsleiðum.”

Að lokum gerir félagið athugasemd við 17. Grein frumvarpsins þar sem stendur að námsmenn geti sótt um að fresta námslokum um allt að fimm á ref hann heldur áfram lánshæfu námi eftir að hann hættir að þiggja námslán. Endurgreiðsla námslána á með nýju kerfi að hefjast einu ári eftir námslokum. Telja læknar það grafalvarlegt ef um rædd grein verði að lögum þar sem sérnám í læknisfræði er ólánshæft nám.

„Í núverandi kerfi geta læknar í formlegu sérnámi frestað námslokum þar til sérnámi er lokið og mótmælir Félag læknanema því ef breyting á að verða þar á. Félagið vísar einnig í umsögn Læknafélags Íslands, þar sem einnig er gerð athugasemd við 17. gr. frumvarpsins.”

Umsögn félags læknanema má lesa í heild sinni hér.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×