Skoðun

Lækkun ofurtolla, vanmetin mótvægisaðgerð

Þórólfur Matthíasson skrifar
Að beiðni íslenskra stjórnvalda gerði sérfræðingateymi á vegum Alþjóðagjaldeyrissjóðsins úttekt á skattakerfinu íslenska. Sérfræðingarnir skiluðu viðamikilli skýrslu í september 2010. Í viðauka er listi yfir 24 tillögur og ráðleggingar sem lúta að endurbótum á skattakerfinu.

Þessar ráðleggingar snúast um allt frá breyttu fyrirkomulagi á skattlagningu einyrkjatekna og einkahlutafélaga til hækkunar á veiðigjaldi og umhverfisgjöldum. Sérfræðingarnir lögðu einnig til að vörugjaldakerfið yrði einfaldað verulega eða lagt af (með hugsanlegri undantekningu fyrir matvöru með háu fitu- eða sykurinnihaldi). Og síðast en ekki síst lögðu þeir til að undanþágum í virðisaukaskattskerfinu yrði fækkað verulega og að hærra þrepið yrði lækkað og hið lægra hækkað, jafnframt því sem gripið yrði til mótvægisaðgerða til að bæta lægri tekjuhópum (barnafjölskyldum og öryrkjum) þann tiltölulega litla skaða sem aðgerðin myndi valda.

Þvert á ráðleggingar AGS

Ekki verður sagt að ríkisstjórn Jóhönnu Sigurðardóttur hafi gengið langt í að hrinda tillögum sérfræðingahópsins í framkvæmd umfram þau skref sem þegar höfðu verið tekin varðandi álagningu veiðigjalds.

Framlag ríkisstjórnar Sigmundar Davíðs Gunnlaugssonar hefur til þessa falist í að lækka veiðigjaldið, þvert á ráðleggingar sérfræðingahóps AGS! En með nýframlögðu fjárlagafrumvarpi og fylgiplöggum þess er gengið til verka: Lægra þrep virðisaukaskatts hækkað og hærra þrepið lækkað lítillega, jafnframt því sem vörugjöld eru afnumin, líka á sykri. Svo virðist sem afnám vörugjalda ásamt hækkun barnabóta sé hugsað sem mótvægisaðgerð við íþyngjandi áhrifum hækkunar lægra virðisaukaskattsþrepsins. Sú aðgerð er ekki nema að hluta til í anda ráðlegginga sérfræðinga AGS. Hlutur lífeyrisþega liggur óbættur hjá garði auk þess sem skilvirkni vörugjaldaniðurfellingarinnar sem mótvægisaðgerðar er umdeilanleg.

Afnám ofurtolla

Allnokkrar tillögur um skilvirkari mótvægisaðgerðir hafa komið fram frá því að fjárlagafrumvarp og tilheyrandi tekjuöflunarfrumvörp voru lögð fram. Ein þessara tillagna felur í sér afnám ofurtolla á innfluttum landbúnaðarafurðum, enda vega landbúnaðarafurðir þungt í innkaupakörfu tekjulægstu heimilanna. Samkvæmt útreikningum Efnahags- og framfarastofnunarinnar, OECD, nam kostnaður neytenda af ofurtollunum sjö milljörðum króna á árinu 2013, en hækkun lægra þreps vasksins kostar neytendur ellefu milljarða króna.

Fréttamaður Kastljóss bar þessa hugmynd undir forsætisráðherra í þætti sínum þann 11. september síðastliðinn. Forsætisráðherra hélt því fram að lækkun ofurtolla hefði minni áhrif á buddu neytenda en lækkun vörugjaldanna. Ríkissjóður hefur þrjá milljarða í tekjur af vörugjöldum á matvöru og 3,5 milljarða af öðrum vörum (ísskápum og flatskjáum). Í framhaldinu lagði forsætisráðherra að jöfnu áhrif afnám landbúnaðarofurtollanna á tekjur ríkissjóðs (tveir milljarðar króna) og áhrif á afkomu heimilanna í landinu (líka tveir milljarðar króna).

Lægri matarreikningur

Þetta er rangt. Lækkun ofurtolla á landbúnaðarafurðum mun ekki aðeins lækka verðið á þeim fáu oststykkjum og nautalærum sem flutt eru til landsins. Lækkun ofurtolla mun þvinga innlenda framleiðendur til að finna hagræðingarleiðir og lækka sína vöru einnig. Þess myndu neytendur vissulega njóta í lægra vöruverði, rétt eins og OECD bendir á. Með því að afnema vörugjöld á matvöru og ofurtolla á landbúnaðarvöru má lækka matarreikning heimilanna um allt að 10 milljarða króna. Væri gripið til þessa ráðs, að fella niður bæði ofurtolla og vörugjöld á mat, má ætla að auðvelt yrði að ná almennri sátt um fyrirhugaðar skattalagabreytingar.




Skoðun

Skoðun

Saman gegn ríkisofbeldi

Vilhjálmur Yngvi Hjálmarsson,Örlygur Steinar Arnaldsson,Sigurhjörtur Pálmason,Simon Valentin Hirt,Kristbjörg Arna E. Þorvaldsdóttir,Ari Logn,Margrét Rut Eddudóttir skrifar

Sjá meira


×