Lækka olíuverð til að friða vörubílstjóra Stefán Ó. Jónsson skrifar 28. maí 2018 06:17 Mótmælin hafa lamað samgöngur í Brasilíu. Vísir/afp
Forseti Brasilíu, Michel Temer, hefur ákveðið að lækka verð á díselolíu í landinu til að binda enda á mótmæli vörubílstjóra. Kyrrstæðir vörubílar á stærstu umferðargötum landsins hafa lamað samgöngur undanfarna daga með tilheyrandi afleiðingum fyrir brasilískan efnahag. Gríðarlangar raðir hafa myndast á bensínstöðvum, hillur stórmarkaða eru víða tómar og lítið sem ekkert flugvélabensín er eftir á brasilískum flugvöllum. Til að koma til móts við kröfur vörubílstjóra ákvað Brasilíuforseti að lækka verð á dísellítranum um 13 krónur. Í sjónvarpsávarpi sagði Temer jafnframt að nýja verðið muni gilda í 60 daga en verði svo endurskoðað á 30 daga fresti. Ekki er vitað hvort vörubílstjórar taki í útrétta sáttahönd forsetans. Fjölmargir verkalýðsforkólfar kölluðu eftir því að mótmælin yrðu stöðvuð eftir að forsetinn hótaði að senda herinn á vörubílstjórana í síðustu viku. Þeir létu sér þó ekki segjast og hótuðu áframhaldandi mótmælum þangað til að olíuverð myndi lækka. Olíverð í Brasilíu hefur tvöfaldast frá árinu 2016.
Mest lesið „Breiðholt mesta fátæktargildra landsins“ Innlent Tíu sektaðir vegna notkunar nagladekkja Innlent Spaðar Rauðu myllunnar hrundu til jarðar í nótt Erlent Segir borgarstjóra óttalegan vettling Innlent Sigríði þykir ólíklegt að hún nái undirskriftum Innlent Tveir létust í banaslysi í Eyjafirði Innlent Sánchez íhugar að segja af sér vegna meintrar spillingar Erlent Skipulögðu árásir í Þýskalandi og víðar í nafni ISKP Erlent Eiríkur og Bjarni takast á um nefnd um íslenska tungu Innlent „Dapurlegt“ að andstæðingar bólusetninga hafi svo mikil áhrif Innlent Fleiri fréttir Sánchez íhugar að segja af sér vegna meintrar spillingar Spaðar Rauðu myllunnar hrundu til jarðar í nótt Skipulögðu árásir í Þýskalandi og víðar í nafni ISKP Fyrstu hergögnin eiga að berast til Úkraínu á næstu klukkustundum Segir ekki af sér þrátt fyrir njósnir aðstoðarmannsins Aðstoðarvarnarmálaráðherra ákærður fyrir mútuþægni Upptök eldsins í gömlu kauphöllinni enn ókunn Settur út af sakramentinu fyrir að stýra minningarstund um Navalní Handtóku barnunga öfgamenn eftir stunguárás í Sydney Ekki ólöglegt fyrir konur að brjóta gegn körlum Grunuð um að hafa banað tveimur börnum Vitni greinir frá ráðabruggi og lögmaður Trump fær viðvörun Öldungadeildin samþykkti 95 milljarða dala aðstoð við Úkraínu, Ísrael og Taívan Reyna að sigla um geiminn á geislum sólarinnar Lýsa yfir áhyggjum af fregnum af fjöldagröfum á Gasa Fá aftur gögn frá tæplega hálfrar aldar gömlu geimfari Umdeildur flutningur á hælisleitendum til Rúanda samþykktur Starfsmaður hægrijaðarflokks handtekinn fyrir njósnir fyrir Kína Gera alvarlegar athugasemdir við verðlaunakerfi Tik Tok Tugir handteknir á mótmælum háskólanema gegn aðgerðum Ísraels Undirbúa stærðarinnar sendingar til Úkraínu Engin sönnunargögn bendla UNRWA við árásina Hættu við umfangsmiklar árásir á Íran Sakaði Trump um að reyna að spilla kosningunum 2016 Dæmdu samskiptastjóra Meta fyrir að „verja hryðjuverk“ Modi sakaður um múslimaandúð í miðjum kosningum Dregur úr vinnu og verkefnum Evrópa hlýnar hraðast heimsálfanna Duda segir Pólverja reiðubúna til að geyma kjarnorkuvopn Segir af sér vegna mistaka í kringum árás Hamas Sjá meira