Innlent

Lægstu mögulegu laun fyrir háskólamenntaða

Kristjana Björg Guðbrandsdóttir skrifar
Á   f ö studag sleit r í ki ð   samningavi ð r æð um vi ð   BHM og ekki hefur veri ð   bo ð a ð   til n ý s fundar s íð an.

Páll Halldórsson, formaður samninganefndar BHM, segir að á meðan ríkið endurmeti ekki tilboð sín sé ekki tilefni til viðræðna. „Þeir voru ekkert að semja við okkur, þegar við vorum ekki tilbúin til að skrifa upp á það sem þeir vorum með þá slitum við fundi. Það sem þeir er að bjóða er út samningstímabilið, hækkun upp á 17,5 prósent.“

Hann segir ríkið bjóða háskólafólki að vera innan við sex prósentum yfir lágmarklaunum í landinu. „Ef að við hækkum okkar lægstu laun, um 17,5 prósent, þá verða þau eitthvað í kringum 317.000 krónur. Þannig að við  verðum innan við sex prósentum yfir lágmarkslaunum í landinu með lægstu mögulegu laun fyrir háskólamenn.“

Páll segir félagsmenn sína orðna reiða. „Við finnum það á fundum sem við höldum að reiðin fer vaxandi, reiðin út í það skilningsleysi sem við mætum, reiðin út í það   störf okkar séu í raun og veru ekki metin meira en svo að ríkið  tilbúið  láta verkföll ganga vikum saman án þess að hreyfa sig í málinu.“


Tengdar fréttir

Báðum viðræðum slitið

Ríkið sleit viðræðum við BHM í dag og hjúkrunarfræðingar gengu frá samningaborði. Bæði félögin höfnuðu tilboði ríkisins í Formaður samninganefndar BHM segir að ríkið eigi að gera sjálfstæða samninga.

Gætu skrifað undir á næstu dögum

VR, Flóabandalagið og LÍV eru nálægt því að ljúka samningum við SA. Formaður VR segir undirritun geta farið fram á næstu dögum ef lokafrágangur gengur vel. Verkföllum SGS hefur verið frestað um sex daga.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×