Innlent

Lægstu laun verði alltaf þriðjungur af hæstu launum

Jóhann Óli Eiðsson skrifar
Ögmundur Jónasson er eini flutningsmaður tillögunnar.
Ögmundur Jónasson er eini flutningsmaður tillögunnar. vísir/vilhelm
Fjármálaráðuneytinu, og stofnunum sem undir það heyra, verður gert skylt að semja á þann veg í kjarasamningum að lægstu föstu launagreiðslur verði aldrei lægri en þriðjungur af hæstu föstu launagreiðslum nái þingsályktunartillaga Ögmundar Jónassonar, þingmanns Vinstri grænna, fram að ganga.

Í greinargerð með tillögunni segir að verði tillagan samþykkt náist mikilvægur áfangi í átt til kjarajöfnunar þó ákjósanlegast væri að launabilið yrði talsvert minna en þrefalt.

„Í stað þess að beðið sé eftir því að gengið hafi verið frá samningum láglaunamannsins svo smyrja megi á kjör hátekjufólksins þá verður byggð inn í kerfið eins konar varnarvísitala fyrir lægstu launin nái tillagan fram að ganga. Annar kostur og betri í kjarasamningum væri að ákveða fyrst kjör hinna hæstu og ganga að því búnu frá almennum kjarasamningum, ella kæmi til kasta sjálfvirkrar vísitölu sem kalla mætti varnarvísitölu lágtekjufólks,“ segir í greinargerðinni.

Þá er lagt til að tillagan nái ekki einvörðungu til launataxtans heldur einnig til annarra fastra greiðslna. Með tillögunni vonast Ögmundur til að sveitarfélögin fylgi fordæmi ríkisins.

„Enda þótt launabilið hjá hinu opinbera sé óásættanlega mikið, þá er það ranglæti smávægilegt miðað við almenna markaðinn þar sem sjálftökumenn skammta sér í mánaðartekjur jafnvel margföld árslaun verkafólks. Með löggjöf verður þetta varla lagað en fordæmi almannaþjónustunnar gæti orðið siðferðilegur vegvísir,“ segir enn fremur í greinargerðinni.

Ögmundur stendur einn að tillögunni.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×