Innlent

Lægðin dýpkar og ferðamenn ættu að vara sig

Stefán Ó. Jónsson skrifar
Það er ekki beint regnhlífaveður næstu daga.
Það er ekki beint regnhlífaveður næstu daga. VÍSIR/ANTON
Áfram geisar norðanáttin á landinu og allhvass er algengur vindhraði þennan morguninn. Má það teljast „þokkalega sloppið miðað við það sem á undan er gengið - og það sem er í vændum,“ að sögn Veðurstofunnar. Gul viðvörun er í gildi fyrir allt landið.

Lægðin dýpkar í dag sem þýðir að það bætir í vindinn síðdegis og má þá búast við norðaustan hvassviðri eða stormi á landinu.

Það verður éljagangur norðan- og austanlands í dag með slæmu skyggni og ferðaveðri. Sunnanlands verður úrkomulaust, en þar þurfa ferðalangar einkum að vara sig á vindstrengjum og vindhviðum. 

Lokanir á vegum

Vegna óveðurs hefur Vegagerðin að sama skapi lokað vegum um Kleifaheiði, Fróðárheiði og á sunnanverðu Snæfellsnesi. Víða er hálka og ættu ökumenn að hafa varann á verði þeir á faraldsfæti í dag. Nánar má fræðast um færð á vegum með því að smella hér.

Vindhraðinn gefur ekkert eftir á morgun, áfram verður norðanhvassviðri eða stormur. Hins vegar gera spár ráð fyrir að ofankoman verði þéttari og gæti jafnvel eitthvað af henni slæðst yfir á sunnanvert landið.

„Þegar á heildina er litið má því búast við því að veður til ferðalaga verði heldur verra á morgun en í dag. Spár gera síðan ráð fyrir að þetta langdregna norðan áhlaup haldi áfram af fullum krafti á föstudag,“ segir veðurfræðingur hjá Veðurstofunni og bætir við: „Að lokum ber að geta þess að gert er ráð fyrir að veðrið gangi niður á laugardag. Fyrst lægir um landið vestanvert og verður orðið rólegt þar um hádegi, en austanlands verður orðið skaplegt á laugardagskvöldið.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×