Lægðin „í beinni“: Hættulega hvasst fyrir ferðalög í kvöld Bjarki Ármannsson skrifar 13. mars 2016 14:00 Mjög slæmu veðri er spáð um allt land næsta sólarhring.
Mjög slæmu veðri er spáð um allt land næsta sólarhring. Kröpp og djúp lægð hreyfist í dag inn á Grænlandshafi og veldur hún suðaustanstormi eða –roki á öllu landinu og rigningu sunnan- og vestanlands. Það mun áfram hvessa síðdegis og má búast við ofsaveðri á Norður- og Vesturlandi í kvöld. Veðrið gengur ekki niður fyrr en í fyrramálið.Á gagnvirku vindakorti af heiminum er hægt að fylgjast með því hvernig veðrið þróast í dag.Talsverð hlýindi fylgja lægðinni og þannig má reikna með mikilli leysingu. Vegfarendur eru beðnir að fylgjast vel með veðurspám og ástandi vega. Einnig er brýnt að hreinsa vel frá niðurföllum og útidyrum á jarðhæðum og í kjöllurum. Vegagerðin bendir vegfarendum á að eftir klukkan fimm eða sex í kvöld verður hættulega hvasst af suðri upp á öll ferðalög að gera, allt frá Hvalfirði vestur úr og norður í Eyjafjörð. Hálka er á vegum víða um land og Fróðárheiði á Vesturlandi er ennþá lokuð. Nánar á vef Vegagerðarinnar.
Veður Mest lesið Lokuðu þorpi í leit að svörum um hvarf tveggja ára drengs Erlent Stærsti gígurinn orðinn „formfagur“ Innlent Lýsisskip strandaði í Fáskrúðsfirði Innlent Voru sérstaklega varaðir við árás frá ISKP Erlent Ísland að tapa í slagnum um ferðamenn Innlent Átta ára stúlka sú eina sem lifði rútuslys af Erlent Vilja einfalda fólki að komast til sjúkraþjálfara Innlent „Það þarf að stoppa svona menn áður en þeir drepa einhvern“ Innlent „Hvergi í verklagsreglum að við séum að reka fólk í burtu“ Innlent Hætt við framboð og vonast eftir þjóðhollum og guðræknum forseta Innlent Fleiri fréttir Ógnaði dyraverði skemmtistaðar með hníf Lýsisskip strandaði í Fáskrúðsfirði Stærsti gígurinn orðinn „formfagur“ Vilja einfalda fólki að komast til sjúkraþjálfara Vélsleðamaður lenti í snjóflóði Kvöldfréttir Stöðvar 2 Hætt við framboð og vonast eftir þjóðhollum og guðræknum forseta Ísland að tapa í slagnum um ferðamenn „Hvergi í verklagsreglum að við séum að reka fólk í burtu“ Aðstoða göngumann á Móskarðshnjúkum Íbúar Hlíða velta fyrir sér dularfullum hvelli Ísland sé í torfkofanum í meðferð alvarlegra atvika Ný og glæsileg skólaþyrping byggð á Hellu Hamfaragámur Bónus tryggir kældan mat í neyðarástandi Fullkomlega sáttur við ákvörðun sína en útilokar ekkert „Það þarf að stoppa svona menn áður en þeir drepa einhvern“ Hádegisfréttir Bylgjunnar Svipar til gamalla óupplýstra rána Sýknaður af ákæru um að hafa tekið í háls barns Bjartur skírdagur fram undan í höfuðborginni Líkamsárás til rannsóknar eftir nóttina Fjölskylda í norðurljósaleit hrakin á brott af leiðsögumönnum Vilja koma böndum á bókhald trúfélaga Ferðaóðir Íslendingar þyrpast í ferðalög innanlands sem utan Verulega brugðið yfir Hamraborgarmálinu Hátt í hundrað dauðsföll á þremur árum Týndi vinningshafinn gaf sig fram og græddi níu milljónir Felldu úr gildi friðlýsingu en mátu Mumma ekki vanhæfan Kvöldfréttir Stöðvar 2 Býr á Íslandi en dæmd í sex ára fangelsi í Rússlandi Sjá meira