Innlent

Lægð við Labrador sendir dótturlægð

Sunna Kristín Hilmarsdóttir skrifar
Góðviðrið stoppar stutt við.
Góðviðrið stoppar stutt við. vísir/hanna
Næsta lægð sem landsmenn mega eiga von á að láti til sína taka er í startholunum við Labrador, austasta fylki Kanada, en lægðin sú mun senda dótturlægð til landsins og hreyfist hún allhratt austur á bóginn. Þetta kemur fram í hugleiðingum veðurfræðings á vef Veðurstofunnar.

„Þungbúinn morgunn heilsar landsmönnum, en skýjahulan brotnar fljótlega upp sunnan- og vestanlands og góðar líkur að sólin láti sjá sig eftir hádegi. Eins og við er að búast stendur góðviðrið stutt því næsta lægð er í startholunum við Labrador. Lægðin sú arna sendir til okkar dótturlægð, sem hreyfist allhratt austur á bóginn,“ segir í hugleiðingunum.

Á morgun verði lægðin síðan yfir Grænlandshaf og mun þá snúast í sunnankalda með rigningu á vestanverðu landinu. Einnig má búast við smá vætu fyrir austan um kvöldið en til huggunar helst þó áfram fremur hlýtt í veðri.

Veðurhorfur á landinu í dag og næstu daga:

Austlæg eða breytileg átt, 3-8 m/s og skýjað, en sums staða lílsháttar væta fram eftir morgni og þokuloft við sjávarsíðuna.

Hæg norðvestlæg eða vestlæg átt eftir hádegi og rofar til S- og V-lands, en stöku skúrir NA-til síðdegis. Vaxandi sunnanátt og þykknar upp seint í nótt, 8-15 m/s og fer að rigna á morgun, hvassast við V-ströndina, en þurrt A-til fram á kvöld. Hiti 10 til 18 stig, hlýjast á S-lands í dag, en NA-lands á morgun.

Á föstudag:

Sunnan og suðvestan 8-13 m/s og rigning, en þurrt á A-verðu landinu til kvölds. Hiti 8 til 18 stig, hlýjast NA-lands.

Á laugardag:

Suðvestlæg átt, víða 3-8 m/s, en norðlægari á Vestfjörðum. Víða dálítil væta, en þurrt að kalla eystra. Hiti 8 til 18 stig, hlýjast fyrir austan.

Á sunnudag:

Vestlæg átt, 3-10 m/s, en norðlægari fyrir norðan. Væta í flestum landshlutum, en þurrt SA-til. Hiti 6 til 17 stig, hlýjast á SA-landi

Á mánudag:

Norðlæg átt og rigning eða súld á N-verðu landinu en skýjað með köflum og stöku skúrir syðra. Kólnandi veður.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×