Handbolti

Lackovic missir af HM í Katar

Lackovic fagnar í leik með Króötum.
Lackovic fagnar í leik með Króötum. vísir/afp
Króatíska landsliðið hefur orðið fyrir höggi því stórskyttan Blazenko Lackovic mun ekki geta spilað með þeim á HM í Katar.

Hann meiddist illa í leik með liði sínu, HC Vardar, um síðustu helgi og þurfti í kjölfarið að leggjast undir hnífinn.

Skyttan verður frá í fimm til sex mánuði vegna meiðslanna sem útilokar hann eðlilega frá HM sem fer fram í janúar.

Þetta er talsvert högg fyrir króatíska liðið enda hefur Lackovic verið lykilmaður þar í mörg ár.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×