Sport

Labbar burt með 5 milljarða aðeins 27 ára gamall

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Percy í leik með Buffalo.
Percy í leik með Buffalo. vísir/getty
Hinn 27 ára gamli Percy Harvin hefur ákveðið að leggja skóna á hilluna því hann er svo spenntur fyrir lífinu eftir boltann.

Hinn afar hæfileikaríki Harvin lék með fjórum liðum á ferlinum og hafði upp úr því rúma 5 milljarða króna.

Hann sló í gegn hjá Minnesota Vikings og fór svo yfir til þáverandi meistara, Seattle Seahawks. Þar byrjaði að halla undan fæti.

Harvin lenti í átökum í búningsklefanum og var sendur frá félaginu til NY Jets. Hann staldraði stutt við þar og fór til Buffalo Bills.

Meiðsli voru að gera honum lífið leitt síðustu árin á ferlinum og nú hefur hann ákveðið að láta gott heita.

Hann ætti að geta lifað þokkalegu lífi á þessum fimm milljörðum sem hann hafði upp úr krafsinu.

NFL



Fleiri fréttir

Sjá meira


×