Körfubolti

Kyrie Irving með fjóra „varamenn“ í Stjörnuleiknum | Svona eru liðin í ár

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Liðin í stjörnuleik NBA-deildarinnar eru nú fullmótuð eftir að NBA tilkynnti hvaða fjórtán varamenn munu bætast í hópinn við þá tíu byrjunarliðsmenn sem voru kosnir í leikinn.

Það voru þjálfararnir í deildinni sem kusu um hvaða sjö leikmenn bættust við í hvort lið en allir þjálfararnir völdu sjö manna lista og þeir sem fengu flest stig komust inn.

Það kom engum á óvart að Russell Westbrook var valinn að þessu sinni en mikla athygli vakti að hann komst ekki í byrjunarlið Vesturdeildarinnar þrátt fyrir að vera bæði með þrennu að meðaltali í leik og stigahæsti leikmaður deildarinnar.

James Harden og Stephen Curry eru í byrjunarliði Vesturdeildarinnar í bakvarðarstöðunum en þeir fengu fleiri atkvæð en Westbrook i í netkosningunni.

Sumir sakna þó að sjá nýliðann Joel Embiid ekki meðal stjörnuleikmanna Austurdeildarinnar en hann hefur spilaði mjög vel með Philadelphia 76ers í vetur og á mikinn þátt í því að liðið hefur bitið vel frá sér að undanförnu.

Golden State Warriors á alls fjóra leikmenn í leiknum og er þetta aðeins í áttunda sinn sem eitt félag á svo marga leikmenn. Draymond Green og Klay Thompson bættust í hópinn í gær en áður höfðu þeir Curry og Kevin Durant verið kosnir í byrjunarlið Vesturdeildarinnar.  Steve Kerr þjálfar svo liðið.

Það er líka fróðlegt að sjá bekkinn hjá Austurdeildinni en það var ekki pláss fyrir hinn stóra og öfluga Joel Embiid því það þurfti að finna stað fyrir alla leikstjórnendur deildarinnar.

Kyrie Irving hjá Cleveland Cavaliers var kosinn sem leikstjórnandi byrjunarliðsins en í nótt bættust við fjórir leikstjórnendur. Isaiah Thomas hjá Boston Celtics, John Wall hjá Washington Wizards, Kemba Walker hjá Charlotte Hornets og Kyle Lowry hjá Toronto Raptors fengu allir sæti í liðinu. Það verða því örugglega nokkrir leikstjórnendur inná á sama tíma.

Hér fyrir neðan má sjá hvernig liðin í Stjörnuleiknum líta út. Leikurinn fer fram New Orleans 19. febrúar næstkomandi.





Lið Austurdeildarinnar:

- Byrjunarliðsmenn -

Bakvörður     Kyrie Irving, Cleveland Cavaliers (4. sinn)

Bakvörður    DeMar DeRozan, Toronto Raptors (3. sinn)

Framherji     LeBron James, Cleveland Cavaliers (13. sinn)

Framherji     Jimmy Butler, Chicago Bulls (3. sinn)

Framherji    Giannis Antetokounmpo, Milwaukee Bucks (Nýliði)

- Varamenn -

Bakvörður     Isaiah Thomas, Boston Celtics (2. sinn)

Bakvörður     John Wall, Washington Wizards (4. sinn)

Framherji    Kevin Love, Cleveland Cavaliers (4. sinn)

Bakvörður    Kyle Lowry, Toronto Raptors (3. sinn)

Framherji     Paul George, Indiana Pacers (4. sinn)

Bakvörður     Kemba Walker, Charlotte Hornets (Nýliði)

Framherji    Paul Millsap, Atlanta Hawks (4. sinn)

 





Lið Vesturdeildarinnar:

- Byrjunarliðsmenn -

Bakvörður     Stephen Curry, Golden State Warriors (4. sinn)

Bakvörður     James Harden, Houston Rockets (5. sinn)

Framherji     Kevin Durant, Golden State Warriors (8. sinn)

Framherji     Kawhi Leonard, San Antonio Spurs (2. sinn)

Framherji     Anthony Davis, New Orleans Pelicans (4. sinn)

- Varamenn -

Bakvörður     Russell Westbrook, Oklahoma City Thunder (6. sinn)

Bakvörður     Klay Thompson, Golden State Warriors (3. sinn)

Framherji     Draymond Green, Golden State Warriors (2. sinn)

Miðherji     DeMarcus Cousins, Sacramento Kings (3. sinn)

Miðherji     Marc Gasol, Memphis Grizzlies (3. sinn)

Miðherji     DeAndre Jordan, Los Angeles Clippers (Nýliði)

Framherji     Gordon Hayward, Utah Jazz (Nýliði)

NBA



Fleiri fréttir

Sjá meira


×