Heilsa

Kynvæðing æskunnar

sigga dögg skrifar
Vísir/Getty
Heimildarmyndin Sexy, Inc fjallar um kynvæðingu (sexualisation) æskunnar.

Í myndinni eru tekin viðtöl við ýmsa sérfræðinga og unglinga og varpar hún nýju ljósi á mál sem margir eru jafnvel hættir að kippa sér uppvið því skírskotanirnar eru orðnar svo algengar og víða.

Samtök sálfræðinga í Bandaríkjunum (APA) tók saman skýrslu um kynvæðingu stúlkna þar sem þeir vara við þróuninni og að augljós teikn séu á lofti um skaðsemi þess fyrir börn og unglinga. Skýrslan er aðgengileg í heild sinni á netinu.

Þessi heimildarmynd ætti að hreyfa við flestum og ekki væri verra að benda unglingum og uppalendum á hana.

Sexy Inc. Our Children Under Influence by Sophie Bissonnette, National Film Board of Canada






Fleiri fréttir

Sjá meira


×