Viðskipti erlent

Kynningarmyndböndin fyrir iPhone 6 og Apple Watch vekja lukku

Samúel Karl Ólason skrifar
Tim Cook, framkvæmdastjóri Apple, á kynningunni í gær.
Tim Cook, framkvæmdastjóri Apple, á kynningunni í gær. Vísir/AFP
Apple kynnti í gær nýja síma fyrirtækisins, iPhone 6 og iPhone 6 plus, ásamt því að kynna snjallúrið Apple Watch. Alls birti fyrirtækið níu myndbönd á netinu sem notuð voru í kynningunni.

Fyrsta myndbandið sem ber heitið Perspective, eða Sjónarhorn. Með því vildu forsvarsmenn Apple sýni grunngildi fyrirtækisins.





Sjónvarpsmaðurinn Jimmy Fallon og tónlistarmaðurinn og Íslandsvinurinn Justin Timberlake tóku höndum saman við gerð tveggja auglýsinga fyrir nýju símana. Þær auglýsingar voru sýndar á kynningu Apple.





Í næsta myndbandi sem sýnt var fjölluðu hönnuðir símanna um hönnun símanna og þróun þeirra. Þá er farið yfir muninn á iPhone 6 og 6 plus á eldri iPhone símum.





Þar á eftir fylgdi myndband sem sýnir útlit símanna.





Snjallúrið Apple Watch var kynnt í gær og hér að neðan er myndbandið sem sýnt var við kynningu þess. Einnig var kynnt hvernig úrið getur verið notað til að hjálpa fólki sem vill vera virkara í lífinu og hreyfa sig meira.





Þar á eftir var sýnt myndband þar sem fjallað er um hönnun Apple Watch.





Síðasta myndbandið sem sneri að Apple Watch sýndi útlit snjallúrsins.





Síðasta myndband kynningarinnar var sýnt áður en hljómsveitin U2 steig á svið. Í myndbandinu er horft til fortíðar, til auglýsinga fyrir iPod fyrir nokkrum árum síðan. Meðlimir U2 voru fengnir til að taka þátt í gerð einnar slíkrar auglýsingar.










Fleiri fréttir

Sjá meira


×