Lífið

Kynning á keppendum: Ætlar byrja á því að kaupa sér klatta í Bakarameistaranum

Stefán Árni Pálsson skrifar
Baldur hefur verið flottur í vetur.
Baldur hefur verið flottur í vetur. vísir/daníel þór
Úrslitaþáttur Ísland Got Talent verður í þráðbeinni útsendingu á Stöð 2 úr Got Talent Höllinni næstkomandi sunnudagskvöld. Sex atriði keppast um hylli dómara og áhorfenda í þeirri von að standa uppi sem sigurvegari og hljóta tíu milljónir króna að launum.

Til að hita upp fyrir úrslitakvöldið fengum við þátttakendurna sex til að svara nokkrum laufléttum spurningum. Spurningarnar sem voru lagðar fyrir keppendur voru hvernig sé týpískur dagur hjá þeim hvaðan þeir kæmu og hvers vegna þeir hefðu tekið þátt. Einnig hvar þeir sæu sig eftir fimm ár, hver sé uppáhaldsdómari keppandans og að lokum í hvað hann myndi nota milljónirnar tíu sem fást fyrir að sigra.

Baldur Dýrfjörð er 16 ára gamall og kemur frá Þorlákshöfn og hefur farið á kostum með fiðluna í seríunni í vetur. Baldur ætlar að byrja á því að kaupa sér klatta í Bakarameistaranum ef hann vinnur tíu milljónir.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×