Lífið

Kynna ungan listamann til sögunnar

Kjartan Atli Kjartansson skrifar
Logi Pedro Stefánsson setndur á bak við hinn unga og efnilega Aron Hannes.
Logi Pedro Stefánsson setndur á bak við hinn unga og efnilega Aron Hannes. Mynd/KjartanHreinsson
„Aron Hannes er klárlega nafn sem allir ættu að leggja á minnið,“ segir Logi Pedro Stefánsson um ungan listamann sem gefur í dag út sitt fyrsta lag og kemur það út undir merkjum útgáfunnar Les Fères Stefson, sem varð til í kringum hljómsveitina Retro Stefson.

„Aron Hannes er fyrsti listamaðurinn sem gefur út undir merkjum Les Fères Stefson án þess að hafa beina tengingu við Retro Stefson. Það sem hefur verið gefið út undir merkjum útgáfunnar hefur verið gert af sveitum sem tengjast Retro Stefson beint,“ útskýrir Logi Pedro.

Lagið sem kemur út í dag ber titilinn I Need U. „Ef maður ætti að setja þetta í einhvern flokk myndi ég segja að þetta væri „alternative RnB“. Þetta er mjög fersk tónlist. Aron Hannes er átján ára að aldri og mjög efnilegur. Hann hefur allt til brunns að bera og er líka bara mjög nettur gaur.“

Útgáfan á lagi Arons Hannesar er tilraun til að endurheimta ferskleikann frá markaðsöflunum.Mynd/KjartanHreinsson
Logi hefur verið iðinn við kolann að undanförnu og mikið verið að gerast í kringum hann. Logi stóð meðal annars á bak við vin sinn Sturlu Atlas, sem gaf út halasnældu (einnig þekkt sem mixteip) fyrr í mánuðinum.

Sturla hefur vakið mikla athygli, bæði á sviði og á samfélagsmiðlum.

„Það sem við erum að gera snýst svolítið um að endurheimta okkar svæði, ef ég get tekið þannig til orða,“ útskýrir Logi og heldur áfram í sama tón: „Það má eiginlega segja að markaðsöflin og fyrirtækin hafi verið að koma svolítið inn á svæði ungs fólks og markaðssett það sem fólki þykir vera eitthvert „edge“ í. Það er nefnilega svo auðvelt að vera „cool“ eftir að internetið varð til. Fólk fer bara inn á næstu Tumblr-myndasíðu og sér lúkk dagsins. Það þarf ekki að stúdera neitt. En við viljum reyna að ná þessum ferskleika aftur til okkar. Gera þetta á okkar vegum. „Hæpið“ sem var í kringum Sturlu Atlas sýnir að fólk vill heyra eitthvað ferskt, eitthvað nýtt sem var ekki markaðssett af markaðsmönnum. Aron Hannes er á svipuðum nótum.“

Lagið I Need U með Aroni Hannesi kemur út í dag á öllum helstu samskiptamiðlunum. 


Tengdar fréttir

Aron Hannes er Jólastjarnan

Það var hinn fjórtán ára gamli Aron Hannes Emilsson sem var valinn jólastjarnan í ár en fjögur hundruð ungmenni sendu inn myndbönd á Vísi til þess að taka þátt í leit Björgvins Halldórssonar að jólastjörnunni, sem mun syngja með goðinu á jólatónleikum hans í desember.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×