Viðskipti innlent

Kynna nýjan vafra tileinkuðum "nördahópnum”

Samúel Karl Ólason skrifar
Jón Von Tetzchner.
Jón Von Tetzchner. Vísir/GVA
Jón Von Tetzchner hefur gefið út nýjan vafra sem ber nafnið Vivaldi. Jón kom að þróun Opera vafrans og var framkvæmdastjóri þess fyrirtækis um margra ára skeið. Síðustu ár hefur Jón unnið að opnun og uppbyggingu frumkvöðlasetra og er eitt þeirra í Eiðistorgi.

Helstu tæknimiðlar heimsins hafa fjallað um nýja vafrann en um 25 starfsmenn starfa hjá fyrirtækinu og þar af ellefu á Íslandi. Af starfsmönnum Vivaldi eru þó nokkrir fyrrverandi starfsmenn Opera.

Heimasíðu fyrirtækisins má sjá hér, en þar er hægt að nálgast fyrstu útgáfu Vivaldi.

Hægt er að nálgast nýja vafrann á vefsíðunni vivaldi.com.
Á vefnum TechCrunch er haft eftir Jóni að vafrinn sé hugsaður fyrir notendur sem vilji meira úr vöfrum en gengur og gerist. Notendur sem skoði margar síður í einu og eyði miklum tíma á internetinu.

Mikil samkeppni er á vaframarkaðinum en tæknirisar eins og Microsoft, Apple og Google hafa sett gífurlega mikla vinnu í að þróa vafra fyrir bæði tölvur sem og síma. Í samtali við CNet, segir Jón að Vivaldi virki fyrir PC, Mac og Linux og að í framtíðinni muni hann virka fyrir síma.

Í samtali við Spyr.is segir Jón að Vivaldi bjóði upp á margt sem aðrir vafrar geri ekki. Í því samhengi nefnir hann margar fylgiþjónustur, góðar lyklaborðsskipanir, gott geymsluminni og fleira sem flýtir fyrir því þegar menn eru að vinna.

„Stundum er þetta kallaður „nördahópurinn” en miðað við þær kynslóðir sem eru að vaxa úr grasi í dag, þá verður markhópurinn eflaust fjölmennari í framtíðinni ef eitthvað er.“


Tengdar fréttir

Nýr íslenskur samskiptamiðill

Von er á nýjum samskiptamiðli frá hugbúnaðarfyrirtækinu Vivaldi en stofnandi fyrirtækisins mun vera Íslendingurinn Jón von Tetzchner.

Fyrsti karlmaðurinn í hluthafahópnum

Jón S. von Tetchner, fjárfestir og annar stofnenda norska hugbúnaðarfyrirtækisins Opera, hefur keypt 23 prósenta hlut í samskiptamiðlinum og frumkvöðlafyrirtækinu Spyr.is.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×