Heilsa

Kynlífsráðgjöf

sigga dögg skrifar
Bæði pör og einstaklingar geta farið í kynlífsráðgjöf.
Bæði pör og einstaklingar geta farið í kynlífsráðgjöf. Vísir/Getty
Kynlífsráðgjöf kann að hljóma framandi í eyrum margra.

Sumir halda að beinar verklegar æfingar með sérfræðingi felist í tímunum en svo er alls ekki. Slíkt hefur ekki tíðkast hér á landi þó það hafi gert það víða erlendis. 

Slíkir ráðgjafar titlað sig stundum sem „sex surrogates“ eða kynlífsstaðgengla.

Að fara í kynlífsráðgjöf svipar til þess að fara í tíma hjá sálfræðingi eða hjónabandsráðgjöf. 

Tíminn fer fram í spjallformi og fer fram bæði sem fræðsla og ráðgjöf.

Í einhverjum tilfellum þarf einstaklingur einnig að undirgangast skoðun hjá lækni en það er gert til að útiloka líffræðilegar ástæður fyrir sumum kynlífsvandamálum eins og sársauka við samfarir. Heilsufarssaga með spurningalista er einnig könnuð.

Bæði geta einstaklingar og pör leitað í ráðgjöf. Oft þegar pör koma þá koma þau í tíma saman en einnig í sitthvoru lagi. Það er sjaldan svo að vandinn liggi bara hjá öðrum aðilanum í sambandinu svo ef viðkomandi er í sambandi þá er vissara að allir sem eiga hlut að sambandi komi einnig í ráðgjöf.

Stundum eru einstaklingum gefnar æfingar til að framkvæma heima sem hluta af ráðgjöfinni. Ein þekktasta æfingin er „sensate focus“ sem var þróuð af kynfræðingunum Masters & Johnson.

Tveir kynfræðingar á Íslandi sinna kynlífsráðgjöf, Jóna Ingibjörg Jónsdóttir og Áslaug Kristjánsdóttir.

Ef þú glímir við kynlífsvandamál, ekki bíða of lengi til að leita eftir aðstoð því  kynverund einstaklinga er mikilvæg.


Tengdar fréttir

Að vera eða vera ekki kynfræðingur

Kynfræði (sexology) hefur þann megintilgang að auka þekkingu okkar á manninum sem kynveru. Fræðigreinin kynfræði er rétt að slíta barnsskónum hérlendis og mikilvægt að hlúa vel að fyrstu skrefunum í allri þróun, ekki síst uppbyggingu menntunar innan kynfræða.

Að verða kynfræðingur

Margir lýsa yfir miklum áhuga af því að læra kynfræði, en hvað felst í náminu og starfinu sem kynfræðingur?






Fleiri fréttir

Sjá meira


×