Heilsa

Kynlífsleysi bjargaði sambandinu

sigga dögg skrifar
Vísir/Getty
Það er orðið æ algengara að fólk sé í kynlífslausum langtímasamböndum.

Í mörgum slíkum samböndum er kynlífsleysið ekki valkvætt og veldur mikilli togstreitu enda er ólík kynlífslöngun eitt algengasta umkvörtunarefni para í kynlífsráðgjöf.

Kynlíf getur verið mikilvægur hluti sambanda, sérstaklega ef togstreita er á milli einstaklinga en samkomulag er það sem skiptir mestu máli þegar kemur að tíðni og útfærslum.

Nýlega birti Huffington Post viðtal við hjón, Clare og John, sem hafa kosið að stunda ekki kynlíf í sínu hjónabandi. 

Þau eru bæði á fimmtugsaldri og stunduðu gott kynlíf við upphaf sambands síns en þau hafa ekki stundað kynlíf saman í sjö ár. Þau kyssast enn og knúsast og segja mikla ást vera í sambandinu en sú ást sé ekki kynferðisleg eðlis, frekar væntumþykja.

Þau hjónin segjast bæði vera ánægð í sínu sambandi og það vera mjög ástríkt en Clare segir að ef þau væru ekki svona ástrík við hvort annað og sýndu blíðuhót þá hefði hún áhyggjur af sambandinu.

Hún segir þau upplifa sambandið sterkara og vera komið lengra en líkamlegt kynferðislegt stig.

Það er þó mikilvægt að taka fram að hvorugt þeirra upplifir kynlöngun og bæði eru þau sátt við kynlífsleysið.


Tengdar fréttir

Kynlífsleysi í sambandi

Kynlíf er mikilvægur hluti af sambandi margra para en þó eru sum pör sem ekki lifa neinu kynlífi þó annan aðila langar það en hinn neitar.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×