Sigga Dögg lýsir samskiptum sínum við sinn heittelskaða á meðan hún var ólétt.
Sigga Dögg skrifar:
Um leið og tvær bleikar línur birtust á pissublautu plastprikinu þá fylltist ég óþrjótandi fróðleiksfýsn í allt sem tengist barnsburði og uppeldi. Ég reyndi að búa mig undir þessa miklu breytingu sem fylgir barneignum, en mig grunaði ekki að stærsta breytingin yrði hvorki svefnleysi né brjóstastærð, heldur samband mitt við makann.
Ég fékk nokkur væg grátköst á meðgöngunni. Eitt kastið stafaði af því að hann pantaði vitlausan mat á veitingastað og eggið sem kom var of lítið eldað. Ég upplifði það sem persónulega árás á ófætt barnið og neitaði að borða (og reyndar að tjá mig) fyrr en við vorum komin heim. Ég gat varla horft framan í manninn.
Annað kast kom þegar mér fannst hann ekki taka virkan þátt í meðgöngunni, því hann las ekki bókastaflann sem ég rogaðist með heim af bókasafninu. Mér fannst bráðnauðsynlegt að hann vissi allt um upplifun kvenna sem fá enga vorkunn, því þær eru bara með einn í útvíkkun. Ég beit hann næstum því af reiði þegar ég vissi að hann væri á leið í sushi og bjór í hádeginu — vissi hann ekki að mig langaði í hráan fisk og áfengi?! Það var eins og hann væri með einbeittan brotavilja til að gera mér lífið leitt.
Raunin var hins vegar sú að hann reimaði skóna mína, nuddaði á mér bakið og náði í vatnsglas og sterkan brjóstsykur um miðja nótt. Geðköstin mín skrifuðust á krúttleg óléttueinkenni. Svo fæddist blessað barnið og lífið snerist á hvolf. Samskipti okkar urðu líkt og íslenskt veðurfar, óstöðugt með meiru, þar sem óveður gat brostið á í hinu mesta blíðviðri. Ég gerði honum upp skoðanir og fyrirætlanir og efaðist stöðugt um eigið ágæti í ljósi þessa nýja hlutverks. Ég sendi hann með bros á vör í vinnuna, en varð svo sturluð af pirringi yfir því að hann fengi að vera í félagsskap fullorðinna, þegar ég var sett í prísund bleyjuskipta og svefnskipulags. Samskipti byggðust á hagnýtum upplýsingum um barnið og matarinnkaup, eldamennsku og hver ætti að hugsa um barnið. Innileiki og nánd voru varla til staðar þar sem kossarnir og faðmlögin, sem voru áður hans, voru nú helguð barninu.
Blessað barnið er svo elskað. Það er þó ekki svo að makinn sé ekki elskaður, hann er bara ekki litli ilmandi sólargeislinn minn. Og kynlíf? Hvenær og af hverju? Af öllum doðröntunum sem ég las, þá fjallaði enginn um breytinguna sem barneignir hafa á samband. Ég ætla að rjúfa þögnina og bæta úr þessu.
Athugið. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Vísir hvetur lesendur til að halda sig við málefnalega umræðu. Einnig áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi eða ósæmilegar athugasemdir.
Konum á Íslandi fjölgaði um fimm í síðustu viku, en körlunum fækkaði að sama skapi. Þannig orðaði sænski skurðlæknirinn Gunnar Kratz það er rætt var við hann í úttekt í helgarblaði Fréttablaðsins. Kra...
Meira
Ekki er beinlínis hægt að segja að menn hafi skrökvað í kosningabaráttunni um stöðu ríkissjóðs og yfirvofandi hættu á greiðsluþroti þjóðarbúsins vegna gjaldeyrisskorts. En það á við talsmenn fráfarand...
Meira
Háskólaumhverfið eins og við þekkjum er um þrjú hundruð ára gamalt. Þótt prófessorar hafi fyrir löngu tekið upp á því að nota tæknina til að varpa upp glærum og festa hljóðnema við skyrtuflipana hefur...
Meira
Sumir vilja láta ríkið selja áfengi til að takmarka aðgengi fólks að því. Ég er ósammála en ég skil rökin. En í umræðunni má stundum heyra önnur rök: Að ríkiseinokun sé nauðsynleg til að tryggja gott ...
Meira
Jæja, það fer víst ekki framhjá neinum að í dag er haldinn hátíðlegur alþjóðlegur Eurovision-dagur um víða veröld og ósköp fátt sem flest okkar geta gert í því.
Meira
Mér hafa borist óvenju margar fyrirspurnir um munnmök undanfarið og þá sérstaklega um tott. Það er kannski ekki skrítið í ljósi þess hvernig munnmök eru stunduð í klámi og fólk svo reynir að leika slí...
Meira
Ein mesta meinsemd menntakerfis Íslendinga er hversu fáir nemendur velja starfs- og iðnnám. Félög atvinnurekanda hafa svo oft kallað á umbætur án þess að því hafi verið svarað að skömm er að.
Meira
Aðsókn í kennaranám hefur minnkað um helming. Fréttablaðið sagði frá því í gær að árið 2006 hefðu 419 manns sótt um að hefja kennaranám við Háskóla Íslands, en 203 í fyrra. Árið 2012 var aðeins 13 ums...
Meira
Nú þegar sumarið er komið bíðum við eftir sólinni sem yljar okkur og öllu öðru, hún glæðir gróðurinn lífi og það hleypur viss kátína í unga sem aldna.
Meira
Mæðradagurinn var á sunnudaginn með tilheyrandi yfirlýsingum á Facebook um hversu dásamlegar mæður fólk ætti almennt. Svo rammt kvað að fullyrðingunum um stórkostleika mæðranna að einhver benti á að þ...
Meira
Viðbrögð við ummælum Áslaugar Örnu Sigurbjörnsdóttur, formanns Heimdallar, um bann við sunnudagsopnun vínbúða, hafa verið vægast sagt öfgakennd. Áslaug svaraði spurningu Fréttatímans og sagðist trúa a...
Meira
Eiturlyf. Sjálft orðið er hlaðið sprengikrafti: ?eitur? er það sem skaðar okkur en ?lyf? er það sem bætir líðan okkar til líkama og sálar. Annað orðið vísar til eyðingar, hitt til lækninga.
Meira
Ég er nýkominn frá Kanaríeyjum. Á suðurhluta Tenerife, þar sem eitt sinn var bara eyðimörk, er nú ferðamannaparadís með alls konar veitingastöðum og hótelum. Allt byggt frá grunni og vissulega missmek...
Meira
Í gær var fyrsta hrefnan drepin í Faxaflóa, rétt fyrir utan skoðunarlínuna svokölluðu. Í fyrra tókst að drepa fimmtíu og þrjú dýr og í ár ætla veiðimenn að gera enn betur. Þeir segja eftirspurnina mik...
Meira
Á Íslandi eru sjötíu og fjögur sveitarfélög. Þeim mætti fækka um sextíu og tvö samkvæmd tillögum svokallaðrar Verkefnastjórnar Samráðsvettvangs en þátttakendur í honum eru leiðtogar stjórnmálaflokka, ...
Meira
Þegar fréttist af Bjarna Benediktssyni og Sigmundi Davíð Gunnlaugssyni í Krónunni í Mosfellsbæ að kaupa inn fyrir stjórnarmyndunarviðræðurnar í sveitinni sendu Samtök verzlunar og þjónustu formönnunum...
Meira
Í dag hefst árleg álfasala SÁÁ og stendur út vikuna. SÁÁ eru félagasamtök sem reka sjúkrahúsið Vog og fjölda annarra meðferðarstofnana. Álfasalan er liður í að fjármagna barna- og fjölskyldudeild SÁÁ....
Meira
Þegar maður horfir á enska sakamálamynd þátt í sjónvarpinu sem gerð er upp úr bók eftir Agöthu Christie er ánægjan ekki endilega fólgin í því að brjóta heilann um plottið – er það ekki alltaf un...
Meira
Þessi jákvæða þróun gefur þó ekki tilefni til að slakað sé á árvekni gagnvart þeirri umtalsverðu áhættu í fjármálakerfinu sem enn er til staðar.“
Meira
Eftirtektarverður árangur frumkvöðlanna sem að sprotafyrirtækinu CLARA standa sýnir í hnotskurn um hvers konar verðmæti er að tefla í þessum í geira nýsköpunar og tækni.
Meira
Einn af mínum uppáhaldshlaupabolum er úr Reykjavíkurmaraþoni Glitnis árið 2007. Bolurinn er úr svona rauðu pólýesterefni sem hrindir frá sér vökva. Ef ég set hann í þvottavél þá kemur hann gott sem þu...
Meira
Óvenjumikil aðsókn kafara hefur verið að Silfru á Þingvöllum það sem af er ári, eins og Fréttablaðið sagði frá fyrr í vikunni. Tvö þúsund kafarar hafa stungið sér í gjána í marz og apríl, miklu fleiri...
Meira