Lífið

Kynleg komment borin á torg

Gunnar Leó Pálsson skrifar
Mikill fjöldi fólks lagði leið sína á Káratorg þegar það var opnað um helgina.
Mikill fjöldi fólks lagði leið sína á Káratorg þegar það var opnað um helgina. mynd/einkasafn
„Við höfum fengið frábærar viðtökur þó svo að það sé alltaf hiti í bílastæðaumræðunni í borginni,“ segir Jón Pétur Þorsteinsson, en hann ásamt Helgu Hrönn Þorsteinsdóttur og Ölbu Solís stendur fyrir því að lífga upp á Káratorg.

Torgið sem er við gatnamót Njálsgötu, Frakkastígs og Kárastígs hefur áður verið nýtt sem bílastæði.

„Reykjavíkurborg stendur fyrir þessu verkefni sem kallast Torg í biðstöðu og vill að fá hópa til þess að gera vannýtt svæði í borginni að flottum almenningsrýmum. Á þessu bílastæði sem okkur var úthlutað komast fjórir bílar fyrir en á opnunardeginum okkar, sem var síðastliðinn laugardag voru um fimmtíu manns á þessu fjögurra bíla svæði hverja stund þannig að það var mjög góð mæting,“ útskýrir Jón Pétur.

Jón Pétur Þorsteinsson.
Á Káratorgi verða þau með ýmsa viðburði og ætla sjá til þess að torgið verði vel nýtt og að almenningur geti tekið þátt við að lífga upp á torgið.

„Við viljum fá fólk til þess að taka þátt með okkur og þræddum til dæmis streng á vegg þar sem að fólk getur hengt upp skilaboð sem það festir með þvottaklemmu. Það eru meðal annars ýmsar kynlegar athugasemdir á veggnum,“ segir Jón Pétur.

„Það virðist vera að langflestir séu mjög hrifnir, en það eru alltaf einhverjir sem vilja bílastæðin. Það komu nokkrir brjálaðir einstaklingar sem voru ekki ánægðir með að við værum að taka þessi fjögur bílastæði.“

Jón Pétur er ánægður með þetta átak Reykjavíkurborgar að glæða flottum og hentugum stöðum lífi. „Það vantar svona staði í Reykjavík, það er ekki svo sterk menning af þessu tagi í borginni, ég fagna þessu átaki.“

Framundan hjá þeim eru ýmsir viðburðir og er á dagskránni til dæmis útibíó, ýmsar innsetningar, plötusnúðar og tónleikar.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×