Innlent

Kynjahlutfall lagahöfunda í Eurovision liggur ekki fyrir

Sunna Kristín Hilmarsdóttir skrifar
Hera Ólafsdóttir, framkvæmdastjóri Söngvakeppninnar.
Hera Ólafsdóttir, framkvæmdastjóri Söngvakeppninnar. Vísir/Stefán
258 lög voru send inn í Söngvakeppni RÚV, forkeppni Eurovision hér á landi. Tólf lög voru valin til þátttöku af sérstakri lagavalnefnd skipaðri fulltrúum frá Félagi tónskálda og textahöfunda, Félag íslenskra hljómlistamanna og RÚV.

Að sögn Heru Ólafsdóttur verða höfundar og flytjendur tilkynntir síðar.

„Nú erum við bara að ræða við þá sem voru valdir og það er verið að skoða samninga og annað slíkt. Við munum því gefa út lagavalið þegar allir samningar eru frágengnir.“

Hera segist ekki viss um hvenær það verður, það fari meðal annars eftir því hvernig gangi að finna flytjendur. Hún segist þó vonast til að það verði í desember.

RÚV setti nýja reglu í undankeppninni sem  sem sagði að helmingur allra laga sem keppa myndu í undanúrslitum yrðu að vera með konu í höfundarteymi. Reglan var mjög umdeild og fór það að lokum svo að fallið var frá henni.

Aðspurð segist Hera ekki hafa tekið saman hvernig kynjahlutfallið sé nú á meðal lagahöfundanna. Hún segir þó að þegar að höfundar og flytjendur verði kynntir verði jafnframt gefin út tölfræði varðandi öll lögin sem send voru inn.

„Það góða núna er að lögin eru send inn á rafrænu formi. Þar af leiðandi höfum við allar upplýsingar varðandi lagahöfunda en það höfðum við ekki áður. Fólk sendi þá bara inn umslög með lögunum á geisladisk og það voru í raun aðeins umslög með nöfnum þeirra sem valdir voru í undankeppnina sem voru síðan opnuð. Síðan var bara öllu eytt og það verður auðvitað gert líka nú þegar við erum búin að fara yfir þetta. Okkur finnst mikilvægt að geta tekið saman tölfræði varðandi lagahöfunda, meðal annars til að sjá hvernig þróunin er í þessu og hvernig við getum fylgt henni eftir,“ segir Hera.

Söngvakeppnin 2015 verður í beinni útsendingu frá Háskólabíói þrjú laugardagskvöld í röð og skiptist í tvær forkeppnir og úrslit.

Forkeppnirnar fara fram 31. janúar og 7. febrúar 2015 þar sem 6 lög keppa hvert kvöld. Úrslit fara svo fram laugardag 14. febrúar 2015.


Tengdar fréttir

New Eurovision tryout rules degrading to women

A new rule that The Icelandic National Broadcasting Service (RUV) introduced for the Icelandic Eurovision tryouts states that half the entries for the tryouts must have a woman credited as a songwriter.

Skilur tilgang RÚV með nýjum reglum

Tónlistarkonan Greta Salóme tekur hatt sinn ofan fyrir tillögu RÚV að reyna að stuðla að bættri stöðu kvenna í tónlist og kynjajafnfrétti almennt.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×