FIMMTUDAGUR 23. MAÍ NÝJAST 16:27

Nýtt ráðuneyti tekur við á ríkisráðsfundi

FRÉTTIR

Kynjafræði í framhaldsskólum

Fréttablaðið Skoðun 06. desember 2011 06:00
Jón Karl Einarsson, nemi í Borgarholtsskóla.
Jón Karl Einarsson, nemi í Borgarholtsskóla.
Jón Karl Einarsson skrifar:
Ég er tvítugur námsmaður í Borgarholtsskóla og hef síðastliðna önn setið í áfanga sem kallast Kynjafræði 103 og fjallar um jafnrétti og mismun á milli kynja á hinum ýmsu stöðum í hinum ýmsu samfélögum. Ég viðurkenni það fúslega að áður en ég fór í þennan áfanga var ég ekki beint minnsta karlremban sem þú getur fundið. Ég hafði mjög gaman af karlrembubröndurum og gerði nokkuð oft jafnvel lítið úr konum. En málið er að ég hafði ekki fengið þá fræðslu sem ég fékk í þessum áfanga. Þessi áfangi kenndi mér ekki bara sögu kvenréttinda og hversu hörkuleg og ógeðsleg sú barátta gat orðið á tímum heldur kenndi hann mér hvernig konur eru hlutgerðar og neyddar í ýmislegt.

Það sem mér fannst fróðlegast var það sem ég lærði um konur í auglýsingum. Þar sá maður mjög skýrt hvernig konum er stillt upp eins og aukahlutum og nánast aldrei sér maður konur horfa niður á karlmann heldur er það í nánast öllum tilfellum að karlinn er meiri manneskja en konan. Það vakti líka bara hreinlega óhug hjá mér þegar talað var um hvernig konur voru notaðar sem aukahlutir í auglýsingum og alltaf meira og meira verið að láta konurnar líta út fyrir að vera ung, saklaus börn og þannig verið að kyngera börn að vissu leyti sem er hreinlega ógeðslegt!

Ég gæti eytt dögum í að telja upp það sem þessi áfangi kenndi mér. Hann gaf mér allt aðra sýn á svo marga hluti eins og klám, auglýsingar og vændi og hvernig þessir hlutir hafa áhrif á okkur öll þó við tökum ekki eftir því og pælum ekki í því. Þessi áfangi sýnir manni allt sem konur hafa fengið framgengt öll þessi ár og hann sýnir manni líka hverju þær eru enn þá að berjast fyrir og hvernig auglýsingar til dæmis, vinna gegn þeim og hlutgera þær.

Ég segi ekki að ég sé orðinn bullandi femínisti en þessi áfangi breytti mér mjög mikið til hins betra sem ég þurfti svo sannarlega á að halda. Þessi áfangi ætti að vera kenndur í hverjum einasta framhaldsskóla landsins til þess að setja karlrembur eins og mig á rétta og betri braut og líka til þess að fræða unga fólkið um stórt málefni sem er í gangi í heiminum í dag. Læra um konur í arabalöndum og líka hvernig konur eru minnimáttar í hinum vestræna heimi.

Þessi áfangi er frábær að því leyti að hann fær mann til að opna augun og einnig vegna þess að hann var mjög skemmtilegur. Kennslan fór mjög lítið bóklega fram og var meira um umræður og gagnvirka kennslu og ekki bara talað um sögu femínisma sem er gott að mínu mati þar sem það getur verið mjög þurrt efni. Þessi áfangi er mjög vinsæll í Borgarholtsskóla og held ég að það væri hægt að kenna þetta fag í öllum skólum með góðum árangri. Mæli eindregið með að allir kynni sér þetta.

Deila
Athugið. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Vísir hvetur lesendur til að halda sig við málefnalega umræðu. Einnig áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi eða ósæmilegar athugasemdir.
Skoðun 23. maí 2013 07:00

Ouagadougou

Næringarspítalar eru skrýtnir staðir. Lífshættulega vannærð börn liggja um allt og halda ekki höfði. Sum börnin enduðu hér eftir að hafa drukkið óhreint vatn heima sem olli endurteknum magakveisum og ... Meira
Skoðun 23. maí 2013 06:00

Aðgerðir gegn brottfalli

Eitt af þeim samfélagslegu markmiðum sem ríkisstjórn Vinstri grænna og Samfylkingar setti í sóknaráætlun til ársins 2020 er að hlutfall Íslendinga á aldrinum 20-66 ára sem ekki hafa lokið formlegu nám... Meira
Skoðun 23. maí 2013 06:00

„Túrbínutrixið“ í Helguvík

1970 var merkilegt ár í íslenskri virkjana- og náttúruverndarsögu, ár Laxárdeilunnar og greinar Nóbelskáldsins, "Hernaðurinn gegn landinu“, sem er enn í fullu gildi. Stjórn Laxárvirkjunar notaði... Meira
Skoðun 23. maí 2013 06:00

Maltneska fyrirmyndin og Evrópa

Ísland hefur nú gert fríverslunarsamning við Kína og er það af hinu góða. Hins vegar breytir það litlu varðandi þá staðreynd að Evrópumarkaðurinn er og verður langmikilvægasti markaður fyrir íslenskar... Meira
Skoðun 23. maí 2013 06:00

Færar leiðir til aukinnar framleiðni

Það hafa margir gripið á lofti þær góðu ábendingar sem finna má í skýrslu ráðgjafafyrirtækisins McKinsey um framleiðni á Íslandi. Meira
Skoðun 23. maí 2013 06:00

Stalínísk stórmennska í Gálgahrauni

Vegagerðin og Garðabær hafa skilað innanríkisráðherra greinargerð vegna nýs Álftanesvegar um Gálgahraun. Í greinargerðinni er því hafnað að hægt sé að koma til móts við óskir Hraunavina og annarra nát... Meira
Skoðun 23. maí 2013 06:00

Mannréttindi, spilling og fjölbreytni

Ansi víða þar sem ég hef verið og komið á undanförnum árum og mánuðum á Íslandi hefur mér fundist beinlínis óþægilegt að finna hvað fólk er oft hikandi við að segja skoðanir sínar. Meira
Skoðun 23. maí 2013 06:00

Að fá lánað

Sem barn lærði ég muninn á að fá lánað og að fá gefins. Þegar ég lánaði bestu vinkonu minni hjólaskautana mína þá vildi ég fá þá alveg eins til baka. Og ekki bara annað stykkið heldur bæði því ég var ... Meira
Skoðun 23. maí 2013 06:00

Merkur stjórnmálamaður og ríkisstjórn kveðja

Árið 2009 lét Jóhanna Sigurðardóttir undan þrábeiðni forystu Samfylkingarinnar og tók við tröllauknustu viðfangsefnum stjórnmála lýðveldistímans. Til hennar var leitað vegna heiðarleika hennar, heilin... Meira
Skoðun 23. maí 2013 06:00

Síðasti séns

Í dag, 23. maí, rennur út frestur til að gera athugasemdir við nýtt deiliskipulag um Austurvöll, Fógetagarð og Ingólfstorg. Ég hvet þig, lesandi góður, til að senda inn athugasemdir við téð skipulag a... Meira
Skoðun 22. maí 2013 06:00

Heimilin alltaf í forgang

Orð formanns Framsóknarflokksins um að staða og horfur í ríkisfjármálum væru verri en áður var talið féllu í grýttan jarðveg. Fráfarandi ráðherrar og stuðningsmenn fóru beint í skotgrafirnar og töluðu... Meira
Skoðun 22. maí 2013 06:00

Heitir rassar og hárlaus höfuð

Eftirfarandi viðbrögð hefur skemmtikraftur líklega aldrei þurft að heyra eftir að viðskiptavinur spyr hann hvað hann rukki fyrir vinnu sína: "Hva, þú getur nú gert þetta ódýrt fyrir okkur, við erum að... Meira
Skoðun 22. maí 2013 06:00

Hvað er verðbólga pabbi?

Upp úr árunum frá 1970 hófst skeið óðaverðbólgu á Íslandi og frá þeim tíma hefur verðbólga verið viðloðandi íslenskt efnahagslíf eins og ólæknandi sjúkdómur. Verðbólgan hefur skotið rótum í þjóðfélagi... Meira
Skoðun 21. maí 2013 09:30

Opin miðborg í andlitslyftingu

Margumbeðnar og löngu tímabærar endurbætur á Hverfisgötu hefjast innan tveggja mánaða. Stór hluti götunnar verður lagfærður í tveimur áföngum frá júlí og fram í október: Fyrst frá Vitastíg vestur að F... Meira
Skoðun 21. maí 2013 07:00

Skarpari en skólakrakki?

Á vef landlæknisembættisins er að finna marga nafnalista yfir þá sem fengið hafa starfsleyfi í heilbrigðisþjónustu m.a. ljósmæður, lækna, sjúkraþjálfara, sálfræðinga og aðrar stéttir sem starfa í heil... Meira
Skoðun 21. maí 2013 07:00

Strangtrúaðir netverjar

Stuttu fyrir Hrunið skrifaði ég pistil í bók og velti fyrir mér hvort það væri tilviljun að skopmyndirnar af Múhameð spámanni hefðu birst í einu stærsta dagblaðinu í Danmörku á sama tíma og Dansk Folk... Meira
Skoðun 18. maí 2013 16:00

Ísland með fyrstu einkunn, -að utan!

Í vikunni bárust a.m.k tvær jákvæðar fréttir sem tengjast áherslum Íslands í velferðarmálum. Báðar fréttirnar sýna að viðbrögð okkar við hruninu hafi verið félagslega meðvituð og árangursrík á sviði v... Meira
Skoðun 18. maí 2013 15:45

Sjúkratryggingar Íslands og ósannindin

Framganga SÍ og velferðarráðuneytisins vegna nýrrar lagasetningar og reglugerðar um greiðsluþátttöku SÍ á lyfjum hefur verið ótrúleg, svo ekki sé meira sagt. Meira
Skoðun 17. maí 2013 12:00

Endurmetum ástandið

Ég hef oft verið spurð að því hvort Suðurnesjamenn séu ólíkir öðrum íbúum landsins. Meira
Skoðun 17. maí 2013 12:00

Aðkoma hótels við Fógetagarð?

Um þessar mundir er í kynningu tillaga að nýju deiliskipulagi fyrir Landsímareit í Kvosinni í Reykjavík. Samkvæmt henni má reisa hús í Kirkjustræti, á bílastæðinu andspænis hinum gömlu húsum Alþingis Meira
Skoðun 17. maí 2013 12:00

Ákall frá krabbameinssjúklingum

Á hverju ári hverfa læknar til útlanda að loknu læknanámi. Þar leggja þeir stund á framhaldsnám og flestir ílengjast áfram erlendis.... Meira
Skoðun 17. maí 2013 12:00

Vorpróf nemenda

Það er komið að lokapunktinum hjá nemendum mínum á þessari önn: lokapróf. Ég stend og horfi yfir hópinn á þessa einstaklinga sem ég hef fengið að kynnast eina önn.... Meira
Skoðun 17. maí 2013 11:30

Um Stephen Hawking og öryggi Ísraels

Í síðustu viku átti sá fréttnæmi atburður sér stað að einn frægasti og merkasti stjarneðlisfræðingur nútímans, Stephen Hawking, tók þá pólitísku ákvörðun að sniðganga ráðstefnuna ”The Israeli Pr... Meira
Skoðun 17. maí 2013 06:00

Grindavíkurbær sinnir náttúruvernd betur

Undanfarið hefur verið nokkur umfjöllun um náttúruvernd á Reykjanesskaga og er það mjög ánægjulegt. Grindavíkurbær er landmesta sveitarfélagið á Reykjanesi og eru margar af perlum svæðisins innan skip... Meira
Skoðun 16. maí 2013 11:00

Hið meinta matvælaöryggi

Því hefur verið haldið á lofti á undanförnum árum, undir forystu forsetans, að við yrðum að tryggja matvælaöryggi. Og með hverju? Meira
  • Fréttir
  • Sport
  • Viðskipti
  • Lífið
  • Skoðun

Mest lesið

Forsíða / Umræðan / Skoðun / Kynjafræði í framhaldsskólum
365 miðlar ehf.
Skaftahlíð 24
105 Reykjavík
sími 512 5000