Innlent

Kynferðisbrot gegn fötluðum grófari

Snærós Sindradóttir skrifar
Svala Ísfeld Ólafsdóttir, dósent við lagadeild Háskólans í Reyjavík.
Svala Ísfeld Ólafsdóttir, dósent við lagadeild Háskólans í Reyjavík. vísir/valli
Kynferðisbrot gegn fötluðu fólki eru oftar grófari og ganga frekar lengra en kynferðisbrot gegn ófötluðu fólki. Í rannsókn Vigdísar Gunnarsdóttur lögfræðings á dómum íslenskra dómstóla á kynferðisbrotum gegn fötluðum þolendum kemur fram að í meirihluta brotanna voru hafðar samfarir við þolendurna.

„Verknaðirnir eru almennt grófari. Sams konar brot eru framin gagnvart ófötluðum en miðað við fámenni hópsins er einkennið grófari verknaðir en ella. Það er minna um kynferðislega áreitni. Í meirihluta tilfella er um að ræða kynferðismök,“ segir Svala Ísfeld Ólafsdóttir, leiðbeinandi Vigdísar og dósent við lagadeild HR.

„Fyrst og fremst held ég að skýringin sé sú að oft koma gerendur þessara brota fram við fatlað fólk af mikilli vanvirðingu og markaleysi.“ Svala nefnir mál þar sem föðurbróðir tveggja fatlaðra systkina var m.a. dæmdur fyrir að neyða systkinin til að hafa samfarir auk þess að neyða bróðurinn til að horfa á sig hafa samfarir við systur hans. „Þetta er mikil sálræn, andleg þjáning til viðbótar við verknaðinn,“ segir Svala.

„Rannsóknir benda til að fatlaðir séu í meiri hættu á að verða fyrir kynferðisbrotum en þeir sem eru það ekki og að brotin séu að jafnaði alvarleg og viðvarandi. Þá hefur verið áætlað að fatlaðir séu allt að fjórum til tíu sinnum líklegri til að verða fyrir kynferðislegri misnotkun en aðrir,“ bætir Svala við.

Í 65% tilvika tengjast gerendur þolendum fjölskylduböndum, eru vinir þeirra eða sinna umönnun.

„Af þessu leiðir að flestir gerendur tengjast eða þekkja til þolenda með þeim hætti að þeir vita af fötluninni og misnota bágindi þolandans,“ segir Svala.

Þá eru fatlaðar konur fjórum sinnum líklegri til að verða fyrir kynferðisofbeldi en karlar.

Fréttin birtist fyrst í Fréttablaðinu 25. maí




Fleiri fréttir

Sjá meira


×