Golf

Kylfingum er illa við Bubba Watson

Bubba þarf að bæta sig i mannlegum samskiptum.
Bubba þarf að bæta sig i mannlegum samskiptum. vísir/getty
Nýleg könnun leiddi í ljós að Masters-meistarinn, Bubba Watson, er ekki vinsæll hjá öðrum kylfingum.

Í raun er öðrum kylfingum frekar illa við Watson og hann lítur á það sem áskorun fyrir sig.

„Ég tek þessu sem svo að ég þurfi að bæta mig sem manneskja. Ég tek þessari niðurstöðu af stolti og veit ég þarf að bæta mig," sagði Watson.

„Ég tel mig sífellt vera að bæta mig sem manneskju en það er augljóslega rými fyrir meiri bætingu. Ef fólki líkar ekki við mig þá verð ég að bæta mig. Sanna fyrir því að það hafi rangt fyrir sér."

103 kylfingar voru spurðir að því hvaða kylfingi þeir myndu ekki bjarga í slagsmálum út á bílastæði. 23 sögðu watson en Patrick Reed kom svo í öðru sæti. Watson segist þó ekki eiga neina óvini á PGA-mótaröðinni.

„Mér er ekki illa við neinn kylfing og á enga óvini."




Fleiri fréttir

Sjá meira


×