Lífið

Kyle Jean-Baptiste lést eftir að hann féll úr brunastiga

Nanna Elísa Jakobsdóttir skrifar
Þessari mynd af Jean-Baptiste var deilt á Twitter-aðgangi uppfærslunnar á verkinu Les Miserables eftir að leikarinn ungi hafði stigið á svið.
Þessari mynd af Jean-Baptiste var deilt á Twitter-aðgangi uppfærslunnar á verkinu Les Miserables eftir að leikarinn ungi hafði stigið á svið. Vísir/Twitter
Leikarinn Kyle Jean-Baptiste sem skráði sig á spjöld sögunnar þegar hann var fyrsti svarti maðurinn og jafnframt sá yngsti til að leika aðalhlutverkið í Les Miserables eða Vesalingunum í uppfærslu á verkinu á Broadway lést á föstudag. Marc Thibodeau, talsmaður uppfærslunnar sem um ræðir, lést þegar hann féll úr brunastiga í New York. CNN greinir frá.

„Fjölskyldan sem hefur myndast í kringum þessa uppfærslu á Vesalingunum er öll í áfalli og eyðilögð yfir skyndilegum og hörmulegum dauða Kyle. Hann var eftirtektaverður ungur hæfileikaríkur maður og ótrúleg manneskja sem bjó til töfra – og skrifaði nýjan kafla í söguna – með frumraun sinni á Broadway,“ segir í yfirlýsingu frá aðstandendum uppfærslunnar. „Við sendum okkar dýpstu samúðarkveðjur til fjölskyldu hans og biðjum ykkur um að virða einkalíf þeirra á þessum ótrúlega erfiðu tímum.“

Jean-Baptiste var forfallaleikari fyrir þann sem lék aðalhlutverk verksins, Jean Valjean, auk þess sem hann lék tvö minni hlutverk í verkinu. Hann steig á svið sem Valjean 23. júlí þegar leikarinn Ramin Karimloo fór í frí.  Jean-Baptiste gekk til liðs við leikarahópinn í maí eftir að hann útskrifaðist með tónlistar- og leiklistargráðu frá Baldwin Wallace University í Ohio.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×