Formúla 1

Kvyat tapar sæti sínu til Verstappen

Kristinn Ásgeir Gylfason skrifar
Kvyat og Verstappen munu hafa sætaskipti
Kvyat og Verstappen munu hafa sætaskipti Vísir/Getty
Formúlu 1 lið Red Bull hefur staðfest að Max Verstappen ökumaður Toro Rosso, taki sæti Daniil Kvyat strax í næstu keppni. Kvyat ók afar klaufalega í Rússlandi síðustu helgi.

Tilfærslan kemur í kjölfar rússneska kappakstursins en Kvyat keyrði tvisvar á Sebastian Vettel á Ferrari í fyrstu þremur beygjum keppninnar. Vettel lenti svo utan í Daniel Ricciardo, liðsfélaga Kvyat hjá Red Bull. Báðir bílar hefðu átt að ná í stig að mati Christian Horner, liðsstjóra Red Bull.

„Daniil [Kvyat] kostaði okkur mikið í dag. Báðir bílar hefðu átt að geta náð í góð stig,“ sagði Horner eftir keppnina í Rússlandi.

„Max [Verstappen] hefur sýnt það að hann er einstakur og hæfileikaríkur ungur ökumaðuð. Frammistaða hans hjá Toro Rosso hefur verið hrífandi og við erum ánægð að sjá hann fá tækifæri hjá Red Bull,“ sagði Horner skömmu eftir að Red Bull staðfesti ákvörðunina.

„Við erum í þeirri stöðu hjá Red Bull að allir okkar ökumenn eru á langtíma samning og við getum fært þá til eins og við teljum henta best,“ bætti Horner við.

Ætla má að meira búi að baki, mörg önnur lið hafa sýnt Verstappen áhuga og líklega er Red Bull að brjóta ísinn, sýna honum traust í von um að halda í ungstirnið. Mistök Kvyat um síðustu helgi hafa hugsanlega verið tækifærið sem Red Bull var að bíða eftir.


Tengdar fréttir

Bílskúrinn: Rosberg einmana í Rússlandi

Nico Rosberg á Mercedes vann sjöttu keppnina í röð í Rússlandi á sunnudag. Hvað var að frétta hjá Lewis Hamilton, hvað var Daniil Kvyat að spá?




Fleiri fréttir

Sjá meira


×